Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Rafmagnsleysi í miðbæ Reykjavíkur Elín Hrönn Jónsdóttir Rafmagnslaust var í póstnúmeri 101 í miðbæ Reykjavíkur vegna bilunar á háspennustreng. Veitur greindu frá þessu á heimasíðu sinni. Rafmagnið ætti að vera komið aftur á hjá öllum að sögn Veitna. Fréttin hefur verið uppfærð. RÚV / Brynjólfur Þór Guðmundsson Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurþing „Þetta veldur okkur tilfinningalegu óöryggi“ Félag eldri borgara á Raufarhöfn sakar Norðurþing um að standa ekki við lögbundnar skyldur sínar við aldraða. Deilur standa yfir um félagsheimili þeirra. Sveitarstjóri segir engin lög vera brotin. Fyrir 39 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarðabyggð Á fætur í Fjarðabyggð hvetur fólk á fætur Gönguvikan „Á fætur í Fjarðabyggð“ hefur verið í fullum gangi síðustu daga. Í boði eru bæði langar og stuttar gönguferðir. Markmiðið með gönguvikunni er að fá fólk í Fjarðabyggð á fætur og þeim allra hörðustu eru veitt hvatningarverðlaun. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: England - Gana England og Gana gerðu markalaust jafntefli í L-riðli á HM í fótbolta í kvöld. Þrátt fyrir bragðdaufan leik lifnaði aðeins yfir honum í seinni hálfleik. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísraelar beina árásum vísvitandi að börnum á Gaza Rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna segir Ísraela vísvitandi hafa beint árásum að palestínskum börnum á Gaza og að drápin hafi haldið áfram þrátt fyrir vopnahlé sem tók gildi í október. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti FH mistókst að endurheimta toppsætið Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Ída Marín Hermannsdóttir skoraði mark FH í kvöld. RÚV / Mummi Lú Níundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta lauk í kvöld með tveimur leikjum sem báðir enduðu 1-1. Annars vegar skildu Grindavík/Njarðvík og Víkingur jöfn. Þar kom Maci Nicole Teater suðurnesjaliðinu yfir en Freyja Stefánsdóttir jafnaði fyrir Víking. Þá gerðu FH og Valur einnig 1-1 jafntefli. Ída Marín Hermannsdóttir kom FH yfir en Nadía Atladóttir skoraði jöfnunarmark Vals. FH mistókst því að endurheimta toppsæti deildarinnar og er nú með 20 stig í 2. sæti, stigi á eftir Breiðabliki sem er í efsta sætinu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Vilja nýta íslenskan jarðvarma til að búa til umhverfisvænna eldsneyti Bandarískir frumkvöðlar hafa byggt tilraunastöð á Húsavík þar sem þeir vilja framleiða eldsneyti með raforku og jarðvarma. Ný tækni geri eldsneytið bæði grænna og ódýrara en áður hafi sést. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Gjaldtaka hefst á bílastæðum við Smáralind Gjaldtaka á bílastæðum við Smáralind hefst í haust. Markmiðið með henni er að koma í veg fyrir að stæðin séu nýtt til langs tíma og að viðskiptavinir fái greiðari aðgang að þeim. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál „Það stenst ekki skoðun að þeir hafi ekki vitað, það er lygi“ Leiðsögumaður á Emstruleið gefur lítið fyrir skýringar franskra ferðamanna um að þeir hafi ekki vitað að utanvegaakstur sé lögbrot. Mennirnir voru í tvígang tilkynntir til lögreglu en létu sér ekki segjast. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hótun gegn hvalveiðiskipum metin ótrúverðug Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra barst símtal í nótt, þar sem hótað var að sprengja annað hvaðveiðiskip Hvals hf. verði fleiri langreyðar skotnar. Yfirlögregluþjónn segir lögreglu meta hótunina ótrúverðuga. Málið sé í rannsókn. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Portúgal - Úsbekistan Portúgal vann stórsigur á Úsbekistan 5-0 í K-riðli á HM í fótbolta í kvöld. Cristinao Ronaldo batt enda á tíu leikja markaþurrð sína á stórmóti og skoraði tvö markanna. Hann varð jafnframt næst elsti markaskorarinn í sögu HM. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Fagnar upphafi hvalveiðitímabilsins – „Tekjumöguleikar sem íslensku verkafólki stendur almennt ekki til boða“ Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir hvalveiðar skipta samfélagið á Akranesi miklu máli. Starfsfólki bjóðist miklu hærri laun en annarsstaðar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Viðgerð hafin á slysagildru í Grafarvoginum Viðgerð er hafin á illa farinni gangstétt í Grafarvoginum þar sem kona á tíræðisaldrei féll fram fyrir sig úr hjólastól um helgina. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa „Það er eiginlega bara varla hægt að anda“ Rauð, appelsínugul og fjólublá viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna steikjandi hita. Spegillinn heyrði í nokkrum Íslendingum sem eru þar sem það er hvað heitast. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hóta að sprengja upp annað hvalveiðiskip Hvals hf. verði fleiri langreyðar skotnar Lögreglu barst í nótt hótun um að sprengibúnaði hefði verið komið fyrir í öðru skipa Hvals hf. Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi segir hana flokkaða sem ótrúverðuga hótun, en gripið hafi verið til ráðstafana. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Felldi úr gildi byggingarleyfi Samhjálpar á Grensásvegi Samhjálp hefur ekki lengur leyfi til að breyta Grensásvegi 46 í húsnæði undir kaffistofu. Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála segir að breyta hefði þurft deiliskipulagi. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Nefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti skilar auðu Alexander Kristjánsson Dómnefnd sem er falið að meta hæfni umsækjenda um embætti dómara telur að þeir fjórir sem sóttu um laust embætti hæstaréttardóma séu jafnhæfir. Umsækjendurnir eru Aðalsteinn E. Jónasson , Ásgerður Ragnarsdóttir, Eiríkur Jónsson og Eyvindur G. Gunnarsson, öll dómarar við Landsrétt. Í 36 blaðsíðna umsögn dómnefndar er niðurstaðan sú að ekki sé hægt að gera upp á milli þeirra. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur því nokkuð frjálsar hendur um það hvern hún ákveður að verði skipaður. Lögum samkvæmt má ekki ganga gegn mati hæfnisnefndar nema með samþykki Alþingis. Séu margir metnir jafnhæfir getur ráðherra þó valið á milli þeirra. RÚV / Ari Páll Karlsson Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Sprenging í skýjakljúfi í Madríd Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Gat á eldiskví í Reyðarfirði - engin staðfest strok Gat fannst á laxeldiskví í Reyðarfirði í seinustu viku. Enn sem komið er hefur enginn strokulax fundist. Deildarstjóri fiskeldis hjá Matvælastofnun telur afar litlar líkur á að lax hafi strokið úr kvínni. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Heitasti dagur í Frakklandi frá upphafi mælinga Dagurinn í dag var sá heitasti í Frakklandi frá upphafi. Meðalhiti sólarhringsins var 29,8 stig. Síðasta met var sett í júlí 2019. Einnig mældist hæsti hiti sem nokkru sinni hefur mælst, 44,3 gráður, í suðvesturhluta landsins. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Stjórnvöld skulda þjóðinni skýringar Bændasamtök Íslands hafa ákveðið að boða til aukabúnaðarþings vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald viðræðna við ESB. Formaður samtakanna segir að verið sé að keyra risastórt pólitískt mál í gegnum samfélagið um hásumar. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Að prjónaskapur gæti framkallað þessi viðbrögð, mér datt það ekki í hug“ Rithöfundurinn Guðrún Jónína Magnúsdóttir er konan á bak við slána sem Jökull Júlíusson klæddist á Þingvöllum um helgina. Beiðnum um peysur, axlaskjól og uppskriftir hefur rignt yfir Guðrúnu en hún hefur ekkert slíkt á sínum snærum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Það sem þú setur inn í gervigreindarforrit verður um leið opinbert gagn Gervigreindarhraðlestin æðir áfram og allir vilja vera um borð en enginn er lestarstjórinn og óvíst hvort einhverjir teinar séu fram undan. Miklir hnökrar eru á öllu sem snýr að öryggi notkunarinnar. „Fjandinn er laus,“ segir tölvunarfræðingur. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Segja um 1,4 milljónir rússneskra hermanna hafa fallið eða særst frá allsherjarinnrás fyrir fjórum árum Um 1,4 milljónir rússneskra hermanna hafa fallið eða særst í Úkraínu síðan allsherjarinnrás Rússa hófst 24. febrúar 2022. Síðasta sólarhring hafa 1390 hermenn fallið eða særst, samkvæmt upplýsingum frá hershöfðingjaráði úkraínska hersins. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Ronaldo fær fyrirsagnirnar og England skaut púðurskotum Portúgal burstaði Úsbekistan 5-0 í fyrsta leik dagsins á HM. Cristiano Ronaldo skoraði tvö markanna en hann hafði fram að þessu ekki skorað í 10 leikjum í röð á stórmóti. Hann varð jafnframt næst elsti markaskorarinn í sögu HM og sá fyrsti til að skora á sex heimsmeistaramótum. England og Gana gerðu svo markalaust jafntefli í öðrum leik kvöldsins. Panama og Króatía mætast kl. 23:00 á RÚV og Kólumbía og Kongó kl. 02:00 á RÚV. Hér var fylgst með því helsta sem gerðist í fyrstu tveimur leikjunum. SAMANTEKT Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Vélmenni mætt til starfa í íslenskum fyrirtækjum Þróun vélmenna fer sífellt fram og nokkur þjónustu- og ræstingarvélmenni eru komin í gagnið í íslenskum fyrirtækjum. Eigandi vélmennarekstrarleigu segir landsmenn mjög spennta fyrir vélmennavæðingunni. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húnabyggð „Gríðarlega mörg störf sem verða til á uppbyggingartíma“ Milljarða uppbygging Borealis á Blönduósi skapar að lágmarki 150 störf á framkvæmdatíma. Borealis og Landsvirkjun kynntu nýjan samning um kaup á raforku í dag. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalfjarðarsveit Slökktu á staðsetningarbúnaði til að tryggja öryggi sitt Hvalveiðiskip Hvals hf. nýta undanþágu frá reglum um að hafa kveikt á sjálfvirkum auðkenniskerfum öryggis síns vegna. Óskað var eftir viðveru lögreglu í nótt þegar fyrstu langreyðum vertíðarinnar var landað í Hvalfirði. 23. júní 2026 kl. 14:00ERLENDAR FRÉTTIR Bretland 10 ár frá Brexit-atkvæðagreiðslunni Áratugur er liðinn síðan Bretar greiddu atkvæði um útgöngu úr Evrópusambandinu. Hvað hefur breyst og hvað segir unga kynslóðin um ákvörðunina? 23. júní 2026 kl. 13:40ERLENDAR FRÉTTIR Finnla