Jarðskjálfti varð milli Þórisjökuls og Oks laust eftir miðnætti. Jarþrúður Ósk Jóhannesdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir fyrstu mælingar benda til þess að hann hafi verið um eða yfir þrír að stærð. Hún segir engin merki um gosóróa. Allt sé með kyrrum kjörum og ekkert bendi til þess að þarna fari að gjósa í bráð. Jarþrúður segir skjálftann í takt við aukna virkni sem verið hefur á milli Þórisjökuls og Oks á síðustu vikum. Í maí varð þar annar skjálfti af svipaðri stærðargráðu. Hann var sá stærsti til að ríða yfir á þessum slóðum síðan í febrúar 2021.