Innlent | mbl | 24.6.2026 | 12:00 Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs, í Landsrétti er málið var tekið fyrir þar fyrir ári síðan. mbl.is/Karítas Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ákært fyrir hryðjuverk Hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun Óraunsannar upplýsingar frá lögreglu „Vona að menn fari kátir út í sumarið“ Sýknaðir í annað sinn af hryðjuverkaákæru Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Landsréttar á ný » Fleiri tengdar fréttir Ekkert í dómi Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða kallar á endurskoðun á ákvæðum almennra hegningarlaga um hryðjuverk. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson lögmaður í samtali við mbl.is en hann er verjandi Sindra Snæs Birgissonar sem var sýknaður af ákæru um tilraun til hryðjuverka í Landsrétti í síðustu viku. Hann hlaut þó 18 mánaða fangelsisdóm fyrir stórfelld vopnalagabrot. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, var yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar rannsókn á málinu hófst. Hann sagðist vera þeirrar skoðunar að endurskoða þyrfti hryðjuverkaákvæðin í viðtali við Morgunblaðið í dag. Frétt af mbl.is Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Dæmigerð kerfisviðbrögð „Þetta eru kannski svona dæmigerð kerfisviðbrögð og það er verið að afvegaleiða umræðuna að mínu mati. Það er bara ekkert í dómi Landsréttar sem kallar á að endurskoða þurfi það hryðjuverkaákvæði,“ segir Sveinn Andri spurður út í tillögu Gríms. Segir Sveinn Andri að hryðjuverkaákvæðið hafi verið tekið upp í íslensk lög að danskri fyrirmynd en að smávægilegar breytingar hafi þó verið gerðar á því eftir gagnrýni frá Jónatani Þórmundssyni, lagaprófessor emeritus, og Evrópuráðinu. Þær breytingar hafi þó ekki haft neitt að segja í dómi Landsréttar. Dómur Landsréttar sneri að sögn Sveins Andra ekki að neinu leyti að því hvort ákvæði hegningarlaganna hefði verið fullnægjandi refsigrundvöllur. Frétt af mbl.is Hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun „Þessi ummæli eru fullkomlega óskiljandi. Málið snýst einfaldlega um sönnun og það reynir þarna á tilraunarákvæði hegningarlaganna, hvort það teljist sannað að tilraun hafi verið til staðar. Það var niðurstaða Landsréttar að tilraun til hryðjuverka væri ósönnuð.“ Frétt af mbl.is Óraunsannar upplýsingar frá lögreglu Áfellisdómur yfir lögreglunni Að mati Sveins Andra er dómur Landsréttar áfellisdómur yfir lögreglunni. „Á þessum fræga blaðamannafundi fullyrtu fulltrúar lögreglunnar það að landsmönnum hefði verið bjargað frá hryðjuverki. Dómur Landsréttar segir hins vegar að það hafi alls ekki verið svo. Að menn skuli ekki hafa kjark til að segja að þetta hafi verið rangt mat og biðjast afsökunar og tekið gagnrýni áfrýjunardómstóls til sín er mikið áhyggjuefni.“ Ríkissaksóknari hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort sótt verði um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í málinu. Hæstiréttur hefur áður tekið málið til sín en í mars ómerkti þetta æðsta dómstig landsins fyrri sýknudóm Landsréttar. Sveinn Andri segir nýjan dóm Landsréttar vera mjög ítarlegan og tekið hafi verið tillit til þeirra atriða sem gagnrýnd voru þegar Hæstiréttur ómerkti fyrri dóminn. Hann telur því ólíklegt að áfrýjunarleyfi fáist að nýju ef um það verður sótt á annað borð. Málið sé þó löngu hætt að koma honum á óvart. Tengdar fréttir Ákært fyrir hryðjuverk Hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun Óraunsannar upplýsingar frá lögreglu „Vona að menn fari kátir út í sumarið“ Sýknaðir í annað sinn af hryðjuverkaákæru Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Landsréttar á ný » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Munu ekki samþykkja tolla eða gjöld Smástirni mun þjóta fram hjá jörðu á laugardag City fast-tracks sidewalk fix following senior’s accident Jóns Sigurðssonar minnst á Þingvöllum Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvirkjar meta framhaldið Fá ekki að opna kaffistofu á Grensásvegi Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Samhjálp hafði nánast lokið framkvæmdum Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Munu ekki samþykkja tolla eða gjöld Smástirni mun þjóta fram hjá jörðu á laugardag City fast-tracks sidewalk fix following senior’s accident Jóns Sigurðssonar minnst á Þingvöllum Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Áreitni og einelti enn útbreitt Myndi kosta rúman milljarð á ári Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Samhjálp hafði nánast lokið framkvæmdum Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn