Vísitala efnahagslífsins, sem endurspeglar mun á fjölda stjórnenda í íslensku viðskiptalífi sem metur aðstæður góðar eða slæmar, lækkaði í 14 stig í júní. Til samanburðar stóð vístalan í 30 stigum í mars, og versnar því mat stjórnenda enn milli kannana, að því er segir í frétt á vef SA. Vísitalan var síðast lægri árið 2020. „Aðeins um 5% stjórnenda telja aðstæður í efnahagslífinu góðar, en um 64% telja þær slæmar.“ Tekið er fram að útlitið sé örlítið skárra þegar horft var til væntinga sex mánuði fram í tímann þar sem vísitalan mældist 35. Um er að ræða reglubundna könnun Seðlabankans og Samtaka atvinnulífsins (SA) um stöðu og horfur í efnahagslífinu meðal stærstu fyrirtækja landsins. Nýjasta könnunin var gerð á tímabilinu 11. maí til 18. júní. Eiga von á minni eftirspurn í fyrsta sinn síðan 2020 Horfur um eftirspurn hafa gefið eftir en vísitölur innlendrar (80) sem og erlendrar eftirspurnar (91) eru nú báðar undir 100 stigum sem þýðir að meirihluti svarenda á von á því að bæði innlend og erlend eftirpurn komi til með að dragast saman á næstu sex mánuðum. Þetta er í fyrsta skipti frá haustinu 2020 sem þessi liður mælist undir 100. Miðað við svör í könnunni heldur skortur á starfsfólki áfram að minnka eftir að hafa náð hámarki á árinu 2022. Aðeins um 15% stjórnenda telja skort á starfsfólki í sínu fyrirtæki um þessar mundir. Um 12% stjórnenda telja að starfsmönnum innan sinna fyrirtækja muni fjölga á næstu sex mánuðum. Á móti telja um 27% svarenda að starfsfólki muni fækka innan þeirra fyrirtækja á næstu sex mánuðum.