- What: Iceland joins the TIPS payment system
- Impact: Icelandic krona becomes a major payment instrument in the TARGET system
Seðlabanki Íslands hefur undirritað samning við Seðlabanka Evrópu um þátttöku Íslands í TIPS, rauntímagreiðslukerfi Evrukerfisins (TARGET Instant Payment Settlement). Samningurinn felur í sér að frá árinu 2028 verður unnt að gera upp rauntímagreiðslur í íslenskum krónum í TIPS, að því er segir í tilkynningu á vef Seðlabankans. „Með þátttöku Íslands verður íslenska krónan fimmti gjaldmiðillinn sem unnt verður að nota til uppgjörs rauntímagreiðslna í TIPS. Auk evrunnar eru sænska og danska krónan þegar í kerfinu og stefnt er að því að norsk króna bætist við árið 2028.“ TIPS er hluti af TARGET-þjónustum Evrukerfisins og er uppgjörskerfi fyrir millibankagreiðslur í rauntíma, sem Seðlabankinn segir að séu að verða sífellt mikilvægari hluti af daglegri greiðslumiðlun heimila og fyrirtækja. Kerfið byggist á uppgjöri milli viðskiptabanka og sparisjóða í seðlabankafé og er hannað með áherslu á öryggi, skilvirkni og samræmda framkvæmd greiðslumiðlunar milli landa. „Þátttaka Íslands í TIPS er til þess fallin að auka rekstraröryggi í greiðslumiðlun hér á landi með því að nýta skilvirka greiðsluinnviði sem mæta auknum kröfum um öryggi, hraða, áreiðanleika og aðgengi að greiðsluþjónustu. Fyrir almenning felur þetta fyrst og fremst í sér að millibankagreiðslumiðlun hér á landi, til dæmis milli einstaklinga og til fyrirtækja, mun hvíla á traustari og samræmdari innviðum sem stuðla að því að greiðslur berist hratt og örugglega allan sólarhringinn.“ Seðlabanki Evrópu birti meðfylgjandi myndir af Ásgeiri og Lagarde í tilefni af undirritun samningsins. © Aðsend mynd (AÐSEND) Samhliða innleiðingu TIPS verður komið á varaleið sem unnt verður að virkja ef TIPS verður tímabundið óaðgengilegt. Með því er stuðlað að aukinni samfellu í nauðsynlegri fjármálaþjónustu og dregið úr rekstraráhættu í innlendri greiðslumiðlun. „Þátttaka í TIPS styður við áframhaldandi þróun og hagkvæmni í greiðslumiðlun hér á landi og mun leysa af hólmi núverandi þjónustu fyrir uppgjör rauntímagreiðslna. Með því verða íslensk greiðsluferli í samræmi við alþjóðlega staðla, á sama tíma og íslenskur fjármálamarkaður nýtur góðs af sameiginlegri tækni, rekstraröryggi og stærðarhagkvæmni Evrukerfisins,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.