Jarðskjálfti af stærðinni 7,1 varð í Venesúela nú rétt eftir klukkan tíu að íslenskum tíma í kvöld. Upptök skjálftans voru 21 kílómetra austur af strandbænum Moron og fannst alla leið til Bogota, höfuðborgar Kólumbíu. Skjálftinn olli nokkurri ringulreið í höfuðborg landsins, Caracas. Samkvæmt AFP hljóp fólk út á götur þegar skjálftinn reið yfir en snéri þó fljótlega aftur inn. Ekki er von á flóðbylgju í kjölfar skjálftans. Stjarnan sýnir staðsetningu upptaka skjálftans.United States Geological Survey