Innlent | mbl | 25.6.2026 | 11:24 Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Suðurlandsbraut eins og hún lítur út í dag. mbl.is/Árni Sæberg Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Borgarlínan Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ Borgarlínustöðvar boðnar út Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta » Fleiri tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ Framkvæmdir næsta árið „Verið að lofa jarðgöngum út um allar trissur“ Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ » Fleiri tengdar fréttir Formaður umhverfis- og skipulagsráðs segir ráðið vera að svara ákalli kjósenda með því að fella úr gildi deiliskipulag á Suðurlandsbraut. Þrengt hafi verið of mikið að umferð á svæðinu í hinu fellda deiliskipulagi og ekki tekið nægilegt tillit til atvinnurekstrar á svæðinu. Þetta segir Guðný María Jóhannsdóttir, formaður Umhverfis- og skipulagsráðs, í samtali við mbl.is. Umræðan um deiliskipulagið á Suðurlandsbraut var fyrirferðamikil í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í maímánuði þar sem atvinnurekendur á svæðinu lýstu þungum áhyggjum af skipulaginu og áhrifum þess á starfsemi sína. Að sögn Guðnýjar er staðsetning sérakreina fyrir Borgarlínu á meðal þess sem verður endurskoðað. Í hinu fellda deiliskipulagi eru akreinarnar fyrir miðju en skoðað verður hvort ákjósanlegra sé að hafa akreinarnar nær gangbrautum. „Þannig gætum við tryggt umferðarflæðið þarna með sama hætti og er í dag og ekki verið að þrengja að umferð. Það sem gerist með því að þrengja að umferð þarna er að umferðin leitar inn í hverfin og það er auðvitað ekki það sem fólkið sem býr í hverfunum þarna í kring myndi vilja,“ segir Guðný. Frétt af mbl.is Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Svona átti Suðurlandsbraut líta út samkvæmt skipulaginu. Teikning/Reykjavíkurborg Óhjákvæmilegt að framkvæmdir tefjist Þá verður einnig skoðað hvort þörf sé á að hafa hjólastíga sitt hvoru megin við Suðurlandsbraut. „Við þurfum að finna lausn á þessu en á sama tíma viljum við stórefla almenningssamgöngur og gera það vel. Þetta snýr að því að taka upp þetta skipulag og vinna það í sátt og samlyndi við þá sem eru að vinna að þessu verkefni sem við höfum kallað Borgarlínuverkefni.“ Aðspurð segir Guðný að unnið verði hratt og örugglega við gerð nýs deiliskipulags á svæðinu. Hún segir óhjákvæmilegt að framkvæmdir á svæðinu tefjist við að fella deiliskipulagið úr gildi. „[...] en við höfum sýnt það fyrstu dagana að við vinnum hratt og örugglega og við ætlum okkur að gera það í þessu máli líka,“ segir Guðný. Er einhver tímarammi kominn á nýtt deiliskipulag? „Nei, við erum ekki komin það langt að geta sagt til um það hvenær við getum verið komin með nýja tillögu að deiliskipulagi fyrir svæðið.“ Sjálfstæðisflokkurinn lagði áherslu á það í aðdraganda kosninga að samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins yrði endurskoðaður heildstætt. Guðný segir að hafið sé samtal við Betri samgöngur um heildstæða endurskoðun á samgöngusáttmálanum. Frétt af mbl.is Borgarlínan gengur af Suðurlandsbrautinni dauðri Frétt af mbl.is Boðar aukið samstarf við atvinnurekendur Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs. Sátt um afgreiðslu málsins Aðspurð segir hún samtalið ekki komið á það stig að hægt sé að segja til um hvaða svæði Borgarlínunnar verði tekin sérstaklega til skoðunar. „Það er þessi hugmyndafræði um miðjusetningu alls staðar sem við munum taka til skoðunar og skoða betri útfærslur á [...]. Við teljum að það sé ekki besta lausnin á öllum svæðum eins og núverandi hugmyndir ganga út á. Það þarf bara að skoða hvert svæði fyrir sig, það getur vel verið að miðjusetning eigi rétt á sér á ákveðnum svæðum.“ Skiptar skoðanir voru á meðal samstarfsflokkanna í borgarstjórn í aðdraganda kosninga um hversu langt ætti að ganga í að endurskoða samgöngusáttmálann. Aðspurð segir Guðný að full sátt hafi verið á meðal fulltrúa meirihlutans í umhverfis- og skipulagsráði um að fella niður deiliskipulagið á Suðurlandsbraut. Ýmisleg stór mál bíða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs næstu misseri og segir Guðný ljóst að líf og fjör verði í ráðinu næstu fjögur árin. „Í kosningabaráttunni töluðum við fyrir því að við ætluðum að breyta um stefnu bæði í samgöngumálum og húsnæðismálum. Báðir þessir málaflokkar eru hjá umhverfis- og skipulagsráði þannig að það verður líf og fjör næstu fjögur árin.“ Tengdar fréttir Borgarlínan Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ Borgarlínustöðvar boðnar út Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta » Fleiri tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ Framkvæmdir næsta árið „Verið að lofa jarðgöngum út um allar trissur“ Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Tala látinna hækkar hratt Lífshætta getur skapast á augnabliki Drukknaði í hitabylgjunni Membership surge after annual fee reduction Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja vara fólk við hitanum nógu snemma Dæmdur fyrir fjárdrátt: Hélt eftir lífeyrisgreiðslum Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Segir eðlilegar skýringar á töfum Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Botnfrosnar væntingar um efnahag Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Lúmskt algengir sjúkdómar Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Hitinn gæti náð 18 stigum Myndin sem setti Noreg á hliðina „Þegar maður er ungur, þá gleymir maður sér“ Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Tala látinna hækkar hratt Lífshætta getur skapast á augnabliki Drukknaði í hitabylgjunni Membership surge after annual fee reduction Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Hlaut 4 mánaða fangelsi fyrir banaslys á Sæbraut Dæmdur fyrir fjárdrátt: Hélt eftir lífeyrisgreiðslum Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Botnfrosnar væntingar um efnahag Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Lúmskt algengir sjúkdómar Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Hitinn gæti náð 18 stigum Myndin sem setti Noreg á hliðina „Þegar maður er ungur, þá gleymir maður sér“ Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku