- What: Reykjavík City warns of phishing scams about unprocessed car parking fees.
- Impact: Residents should be cautious of suspicious messages and avoid clicking on links.
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Borgin varar við svikaskilaboðum um ógreidd bílastæðagjöld Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Reykjavíkurborg varar við svikaskilaboðum sem fólki hafa borist um ógreidd bílastæðagjöld. „ATH: Bílastæðasjóður borgarinnar er ekki að senda frá sér nein SMS heldur er um svikatilraunir að ræða. Alls ekki bregðast eða fylgja hlekkjum úr þessum skilaboðum,“ segir í borða efst á vef borgarinnar. Skjáskot Fyrir 27 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Loftkæling orðin að pólitísku bitbeini í hitabylgjunni Hitamet eru að falla hægri og vinstri í Evrópu, þar á meðal í Frakklandi, þar sem hitabylgjan hefur vakið upp harða og afar pólitíska umræðu í Frakklandi um kosti og galla loftkælingar. Aðeins um fjórðungur bygginga í Frakklandi er með slíkan búnað. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fylgir starfi lögreglu að umgangast fólk með smitsjúkdóma Formaður stjórnar Landssambands lögreglumanna segir sóttvörnum í störfum lögreglu ábótavant. Lögreglumaður greindist með berkla fyrr á árinu. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Gaman að sjá viðhorf karlrembna breytast þegar þeir eignast dætur „Þá finna þeir á eigin skinni hve mikið lægri launin eru, verri æfingatímar, verri fótboltavellir,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tveir neituðu sök en ekki næst í þann þriðja í Höfðatorgsmáli Tveir sakborningar í Höfðatorgsmálinu mættu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur við þingfestingu. Sá þriðji er erlendis og næst ekki í hann. Sakborningarnir tveir neita sök. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Karlar og eldra fólk hlynntara hvalveiðum 41% þjóðarinnar er andvíg veiðum á langreyðum en 33% eru hlynnt. Konur og yngra fólk er líklegra til að vera á móti hvalveiðum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Mikill vöxtur í tækni- og hugverkaiðnaði Brynjólfur Þór Guðmundsson Uppgangur var í tækni- og hugverkaiðnaði í vor. Tekjur af starfseminni námu tæplega 120 milljörðum króna í mars og apríl og höfðu þá aukist um tólf prósent milli ára. Verulegur vöxtur var í upplýsingatæknigreinum, sérstaklega í tengslum við rekstur gagnavera. Þar hátt í þrefaldaðist veltan. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar um veltu helstu atvinnugreina. Velta jókst umfram verðbólgu í um helmingi atvinnugreina. Velta sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækja jókst um 27 prósent. Aðra sögu var þó að segja af ferðaþjónustunni þar sem veltan dróst saman um sjö prósent. Gagnaver Verne í Reykjanesbæ. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Þriggja ára barn fannst látið í bifreið Þrjú börn hafa fundist látin í bifreiðum í Frakklandi síðan hitabylgja hófst um helgina. Tugir hafa drukknað við að reyna að kæla sig. Hitametið var slegið tvisvar á þremur dögum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Ítalir og Íranar gagnrýna orð Ruttes Framkvæmdastjóri NATO áréttaði stuðning bandalagsríkja í Evrópu við her Bandaríkjanna meðan á stríðinu í Íran stóð. Orð hans hafa farið öfugt ofan í ráðamenn á Ítalíu og í Íran. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Einn Frakkanna státar sig af bílferðinni Einn frönsku ferðamannanna sem voru sektaðir fyrir stórfelldan utanvegaakstur um helgina birti kort af bílferðum sínum um landið á síðu þar sem ferðalangar deila skemmtilegum leiðum t.d. sem hægt er að fara á torfærubíl, um allan heim. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Segir innflytjendastefnu geta verið bæði mannúðlega og árangursríka Hægt er að reka mannúðlega innflytjendastefnu og ná árangri í að draga úr ólöglegum komum til landsins á sama tíma, segir utanríkisráðherra Spánar. Ráðherrann fundaði með utanríkisráðherra Íslands. Unnið er að opnun spænsks sendiráðs á Íslandi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rigning nema á Austurlandi þar sem hiti gæti náð 18 stigum Það bætir örlítið í vind í dag og rignir í flestum landshlutum nema á Austurlandi. Þar verður hiti hæstur, allt að 18 stig. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Nær fámennasta þjóðin inn í 32-liða úrslit? Sex leikir eru á dagskrá heimsmeistaramótsins í fótbolta í kvöld og í nótt. Fámennasta þjóð sem hefur tekið þátt á HM á enn möguleika á sæti í 32-liða úrslitum. Curaçao mætir Fílabeinsströndinni. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Vasaþjófar stálu vegabréfi í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um vasaþjófnað í miðborginni síðasta hálfa sólarhringinn. Meðal þess sem þjófarnir náðu að stela var vegabréf. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Suður-Afríka – Suður-Kórea Suður-Afríka tryggði sér annað sætið í A-riðli með 1-0 sigri gegn Suður-Kóreu. Þetta er í fyrsta sinn sem Suður-Afríkumenn komast upp úr riðlakeppni á HM í fótbolta. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Tékkland – Mexíkó Lið Mexíkó sigraði Tékkland nokkuð auðveldlega í nótt með þremur mörkum gegn engu. Mexíkó endaði í efsta sæti A-riðils. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Suður-Afríkumenn komnir upp úr riðlakeppninni í fyrsta sinn Úrslit liggja fyrir í A-riðli á HM í fótbolta. Mexíkóar kláruðu riðlakeppnina með fullt hús stiga og Suður-Afríkumenn nældu sér í annað sætið með sigri gegn Suður-Kóreu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Hráolíuverð orðið lægra en við upphaf stríðsins í Mið-Austurlöndum Grétar Þór Sigurðsson Olíu- og flutningaskip í Ómanflóa við Hormússund. AP / Uncredited Verð á Brent-norðursjávarolíu lækkaði um rúmlega prósent við opnun markaða í Asíu í morgun. Það þykir til marks um aukna bjartsýni fjárfesta til friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran. Þá hefur umferð olíuflutningaskipa um Hormússund farið stigvaxandi á síðustu dögum. Verð á tunnu af Brent-norðursjávarolíu til afhendingar í ágúst fór niður í 72,44 Bandaríkjadali við opnun markaða. Þegar markaðir lokuðu kvöldið áður en Bandaríkjaher hóf árásir á Íran í febrúar nam verðið 72,48 dölum. Eftir að stríðið í Mið-Austurlöndum hófst hækkaði hráolíuverð hratt og fór hæst í um 119 dali á tunnu í mars. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveir handteknir eftir sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Grétar Þór Sigurðsson Frá æfingu sérsveitarinnar. RÚV / Ragnar Visage Tveir menn voru handteknir í íbúðarhúsnæði við Hverfisgötu í Hafnarfirði í kvöld. Vísir greinir frá þessu. Ekki liggur fyrir hvers vegna lögregla og sérsveit voru kölluð að húsinu. Í frétt miðilsins er haft eftir sjónarvotti að lögregla og sérsveit hafi farið inn í hús við Hverfisgötu rétt fyrir klukkan 23 í kvöld og tekið mennina tvo fasta. Áður en lögreglan lét til skarar skríða hafði ómerktur lögreglubíll staðið fyrir utan húsið í um tvær klukkustundir. 25. júní 2026 kl. 0:57ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Haítímenn enduðu 52 ára bið með einu af mörkum mótsins Marokkó vann öruggan sigur gegn Haíti, 4-2, og fer þar með áfram í 32-liða úrslit. Marokkó varð í öðru sæti í C-riðli. Haítí var úr leik fyrir leikinn en skoraði sín fyrstu mörk á HM. Liðið var fyrst með á HM 1974. 25. júní 2026 kl. 0:55ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Skotar þurfa að þola langa bið eftir örlögum sínum Skotar máttu þola 0-3 tap gegn Brasilíu í C-riðli á HM í fótbolta. Þar með eru þeir í þriðja sæti riðilsins og þurfa að bíða lengi eftir niðurstöðu í sínum málum. 25. júní 2026 kl. 0:48ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Skotland - Brasilía Brasilía vann C-riðilinn á HM í fótbolta eftir 3-0 sigur gegn Skotum. Brassar litu vel út í kvöld og hefðu getað skorað fleiri mörk. Skotar þurfa að bíða í viku til að sjá hvort liðið fari áfram. 25. júní 2026 kl. 0:44ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Marokkó - Haíti Marokkó vann öruggan sigur gegn Haíti, 4-2, og fer þar með áfram í 32-liða úrslit. Marokkó varð í öðru sæti í C-riðli. Haítí var úr leik fyrir leikinn en skoraði sín fyrstu mörk á HM. 25. júní 2026 kl. 0:30ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Neyðarástandi lýst yfir í Venesúela eftir tvo öfluga jarðskjálfta Tveir stórir jarðskjálftar urðu í Venesúela á miðvikudagskvöld. Sá stærri var 7,5 að stærð en sá minni 7,2. Skjálftarnir riðu yfir með tæplega mínútu millibili. Hús í höfuðborginni hrundu í jarðskjálftunum. Bandaríska jarðfræðistofnunin telur líkur á miklu manntjóni. Forsetinn hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu. Að minnsta kosti 164 eru látnir og 971 slasaður en yfirvöld óttast að tugir þúsunda hafi dáið. Skemmdir urðu á alþjóðaflugvellinum í Caracas og honum hefur verið lokað. FRÉTTAVAKT 24. júní 2026 kl. 23:36ERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Trump fyrir vonbrigðum með stuðning NATO í Íransstríðinu Donald Trump lýsti yfir vonbrigðum með stuðning NATO-ríkja í stríðinu í Íran á fundi með Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, í kvöld. Rutte segir Trump enn virða skuldbindingar sínar við NATO. 24. júní 2026 kl. 23:30ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Jarðskjálftar upp á 7,2 og 7,5 með mínútu millibili í Venesúela Björgvin Brynjarsson Tveir jarðskjálftar hafa riðið yfir í Venesúela í kvöld. Sá fyrri, af stærðinni 7,2, varð rétt eftir klukkan tíu að íslenskum tíma í kvöld. Upptök skjálftans voru 21 kílómetra austur af strandbænum Moron og fannst alla leið til Bogota, höfuðborgar Kólumbíu. Tæplega mínútu síðar reið yfir annar skjálfti af stærðinni 7,5 um 45 kílómetrum frá þeim fyrri. Byggingar í höfuðborginni Caracas hafa hrunið í kjölfar skjálftanna. Gefnar hafa verið út flóðbylgjuviðvaranir í Venesúela og nokkrum eyríkjum í Karíbahafinu, þar á meðal Puerto Rico, Jómfrúareyjum og Curaçao. Fréttin var uppfærð. AP / Ariana Cubillos 24. júní 2026 kl. 23:02ERLENDAR FRÉTTIR Japan Jarðskjálfti af stærðinni 6,9 í Japan Björgvin Brynjarsson Jarðskjálfti af stærðinni 6,9 varð í norðurhluta Japans í kvöld, samkvæmt veðurstofu landsins. Flóðbylgjuviðvörun hefur ekki verið gefin út. Fréttin verður uppfærð. Rauði krossinn á myndinni sýnir staðsetningu upptaka jarðskjálf