Innlent | Morgunblaðið | 25.6.2026 | 12:23 Mánaðarpassar fyrir nágranna Smáralindar Hér má sjá hluta af bílastæðinu sunnan Smáralindar. mbl.is/Eyþór Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Íbúum í nágrenni Smáralindar mun standa til boða að leigja bílastæði við Smáralind á hagstæðu verði. Þetta segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum, en útfærslan verði kynnt í haust. Tilefnið er að Smáralind greindi frá því í fyrradag að til stæði að innleiða nýtt fyrirkomulag á bílastæðum við verslunarmiðstöðina, „með það að markmiði að tryggja viðskiptavinum betra aðgengi að bílastæðum við húsið“. Ókeypis verður að leggja við Smáralind í fjórar klukkustundir en eftir þann tíma verður innheimt bílastæðagjald sem nemur 450 krónum á klukkustund. Innleiðing kerfisins hefst í haust og verður framkvæmd í áföngum. Rekstur og þjónusta kerfisins verður í höndum Green Parking, að því er segir í tilkynningu frá Smáralind. Tilkynningin vakti athygli og sköpuðust meðal annars umræður meðal íbúa í Smárabyggð, nýja hverfinu sunnan Smáralindar sem er með tæplega 700 íbúðir. Af því tilefni var Baldur Már spurður hvort Heimar, sem eiga Smáralind, myndu bjóða upp á leigu á stæðum á vægara verði en sem nemur tímagjaldi. Baldur Már upplýsti þá að mánaðarpassar yrðu kynntir í haust en nánar yrði greint frá þeirri þjónustu og verðlagningu þegar nær dregur. „Við erum einfaldlega að tryggja að viðskiptavinirnir fái stæði en það má til dæmis nefna að þegar Smáralind er opnuð klukkan 11 á morgnana eru 400 bestu stæðin alltaf upptekin. Starfsfólk Smáralindar og skrifstofubygginga í kring er þá mætt til vinnu. Fái bestu stæðin Þannig að við erum einfaldlega að tryggja að viðskiptavinir fái bestu stæðin en mjög fáir viðskiptavinir leggja lengur en í fjóra tíma. Þannig að þetta á ekki að koma niður á þeim. Það má líka benda á að aðsókn í Smáralind jókst um 20-40% eftir að hin nýja mathöll, Garðurinn, var opnuð í nóvember síðastliðnum,“ segir Baldur Már. Loks vekur hann athygli á því að starfsfólk í Smáralind muni áfram geta lagt frítt við húsið á vinnutíma, en gert sé ráð fyrir sérstökum starfsmannasvæðum fjær inngöngum og eftirsóttustu stæðunum. Byggt yfir stæði Klasi undirbýr mikla uppbyggingu á bílaplaninu sunnan Smáralindar, gegnt Silfursmáranum í Smárabyggð. Rætt hefur verið um 80 íbúðir og 15 þús. fermetra af skrifstofuhúsnæði, ásamt bílakjallara með um 400 stæðum. Þá er rætt um 50 stæði ofanjarðar en málið hefur verið til skoðunar hjá skipulagsyfirvöldum í Kópavogi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mánaðarpassar fyrir nágranna Smáralindar Leyfa kælibúnað í hitabylgjunni Beðið eftir þeim fyrsta úr Ásunum Myndskeið: Brasilíumenn í stuði í Miami Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dæmdur fyrir fjárdrátt: Hélt eftir lífeyrisgreiðslum Ríkisstjórnin fær einkunnina -7 Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Lúmskt algengir sjúkdómar Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Myndin sem setti Noreg á hliðina Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Botnfrosnar væntingar um efnahag Hitinn gæti náð 18 stigum Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Mánaðarpassar fyrir nágranna Smáralindar Leyfa kælibúnað í hitabylgjunni Beðið eftir þeim fyrsta úr Ásunum Myndskeið: Brasilíumenn í stuði í Miami Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Maðurinn sem bauð Noregi birginn Þáði hærri laun en Vilhjálmur Ekki hlutverk ráðherra að endurskoða mat Arion Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Lúmskt algengir sjúkdómar Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Myndin sem setti Noreg á hliðina Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Botnfrosnar væntingar um efnahag Hitinn gæti náð 18 stigum Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku