Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nýtt hlaðvarp um norræn fræði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 18.2.2026 | 22:30 Nýtt hlaðvarp um norræn fræði Teresa Dröfn Njarðvík og Hjalti Snær Ægisson umsjónarmenn hlaðvarpsins. Ljósmynd/Sigurður Stefán Jónsson Hlaðvarpið Glælogn hóf göngu sína á vegum Árnastofnunar um miðjan janúar. Í um klukkutíma löngum þáttum er fjallað um bókmenntir, sögu og menningu Norðurlanda, einkum miðaldafræði. Aðalumsjónarmenn eru fræðimennirnir Teresa Dröfn Njarðvík og Hjalti Snær Ægisson. Hann sér einnig um hlaðvarpið Heimur í orðum og er nýtt efni í því eða Glælogni sent út á miðvikudögum. Hjalti Snær bendir á að margar fræðigreinar séu skrifaðar um norræn fræði, bæði hérlendis og erlendis. Oftar en ekki séu þessar greinar í erlendum ritum og staðreyndin sé sú að stöðugt færri lesi fræðirit. Hlaðvörp nái til mun fleiri og til þess sé leikurinn gerður, að miðla fræðunum, benda á áhugaverð skrif. Þau nálgist efnið með gagnrýnu hugarfari og segi kost og löst á greinum, sem teknar eru fyrir. „Þetta er umfjöllun um fræðileg skrif og kynning á bókmenntum, eins konar ritrýni í mæltu máli.“ Hlaðvörpin eru einkum hugsuð fyrir einstaklinga, sem þekkja til bókmennta á umræddu tímabili eða hafa áhuga á þeim. „Þetta er ekki kynning sem slík,“ leggur Hjalti Snær áherslu á. Stjórnendur tali frjálst og láti hlutina flakka, en ástríðufullir hlustendur geti síðan flett upp í greinunum á netinu til nánari skýringar. Hlaðvörp séu þess eðlis að þegar þáttastjórnendur ná sér á flug sé gaman að hlusta. „Þá vill maður meira.“ Nýmeti Í þáttunum er að jafnaði ekki tekið fyrir eldra skrifað efni en tíu ára. „Þetta er því nýmeti úr fræðunum.“ Þau taki gjarnan fyrir tvær greinar um sama eða ólíkt efni í hverjum þætti. Beri þær saman, fjalli um nálgunina og tengingu. Eins ræði þau um rit eða bækur og nýlega var bókin Rúnir á Íslandi eftir Þórgunni Snædal á dagskrá. Þau hafi auk þess fjallað um greinar um trúarkvæðið Sólarljóð , sem áður var eignað Sæmundi fróða, og greinar um myrkur og nótt í Íslendingasögum. Heimur í orðum byrjaði með viðtali við Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, um eitt minnsta íslenska handritið sem varðveist hefur. Nafnið Glælogn kemur úr Glælognskviðu. „Merking orðsins er svolítið á huldu,“ segir Hjalti Snær. Glær er sjór og því geti glælogn verið logn á hafi. „Því má segja að við séum á hafi fræðanna og gefum okkur stundarkorn til að hugleiða. Þegar kemur logn hefur maður svigrúm.“ Áður en Hjalti Snær hóf störf á Árnastofnun var hann með hlaðvarpið Síðasta lag fyrir myrkur og fjallaði um samtímabókmenntir. Hann segir að mun skemmtilegra sé að vera með hlaðvarp með öðrum. Þau ætli að byrja með 12 þætti af Glælogni og sjá síðan til um framhaldið að þeim loknum í sumar. Haldnir eru margir fyrirlestrar í tengslum við handritasýninguna í Eddu sem heitir Heimur í orðum. Í samnefndu hlaðvarpi spjallar Hjalti Snær við fyrirlesara og segir að hugmyndin sé að stinga þeim þáttum inn á milli, þannig að það verði alltaf nýtt hlaðvarp á hverjum miðvikudegi fram í júní. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Tryggvi fór á kostum á Spáni Staðfesti orðróminn um typpastækkun Nýtt hlaðvarp um norræn fræði Vatíkanið tekur ekki þátt í friðarnefnd Trumps Ég negldi honum eins fast og ég gat Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Veita undanþágur vegna líkbrennslu Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Pútín, konur og greiðar: Rússatengsl Epsteins Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Tryggvi fór á kostum á Spáni Staðfesti orðróminn um typpastækkun Nýtt hlaðvarp um norræn fræði Vatíkanið tekur ekki þátt í friðarnefnd Trumps Ég negldi honum eins fast og ég gat Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert „Við finnum að símtölin eru þung“ Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article