- What: Police receive support from special unit in Esju operation
- Impact: Local law enforcement in Iceland
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla naut aðstoðar sérsveitar undir Esjunni Guðmundur Atli Hlynsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra í aðgerð undir Esjunni fyrir skömmu. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfestir þetta. Óskað var eftir aðstoð sérsveitar. Á mynd frá vettvangi má sjá að minnsta kosti tvo lögreglubíla umkringja annan bíl. Þá eru lögreglumenn við bílinn. Mynd af vettvangi. Aðsend Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Til skoðunar að bæta við neyðarnúmeri Til skoðunar er að bæta við símanúmeri í Neyðarlínuna á meðan á yfirfærslu úr 2G og 3G stendur. Það gætu verið lagalegar hindrarnir, segir sviðsstjóri hjá Fjarskiptastofu. Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Vilja byggja upp nýtt og minna samskiptateymi í borginni Borgarstjóri segir það hafa verið erfiða ákvörðun að segja upp stórum hluta skrifstofu borgarstjóra. Ekki standi til að útvista öllum verkefnum. Fyrir 40 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Auka reglubundið rafmagnsleysi vegna árása Úkraínuhers Reglubundið rafmagnsleysi verður aukið hjá íbúum á Krímskaga vegna árása Úkraínuhers. Rússnesk yfirvöld hafa stöðvað eldsneytissölu til almennings vegna aukinna árása. Fyrir 42 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Tillaga borgarstjóra: Leggur niður teymi, ráð og tvær skrifstofur Í fundargerð borgarráðs er farið nánar út í hagræðingar sem meirihluti borgarstjórnar hefur samþykkt. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar og lýsa yfir áhyggjum af niðurskurði í tilteknum málaflokkum. Fyrir 53 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Óttast að fleiri uppsagnir séu í uppsiglingu Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, óttast að meirihlutinn í borginni muni ráðast í frekari uppsagnir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fjárhagsstaða hefur meiri áhrif á líðan en áður Verkefnastjóri geðræktar hjá embætti landlæknis segir stjórnvöld þurfa að bregðast við auknum ójöfnuði þegar kemur að heilsu. Mikill munur sé á líðan fólks eftir fjárhag. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Í súld og sumaryl ég samdi þetta lag Þrátt fyrir talsverða súld er sumarútgáfan er enn á fullu blasti eins og heyrðist í Undiröldum vikunnar þar sem Quarashi, Spacestation og mörg fleiri buðu upp á spriklandi ferska tónlist. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Sanna óskaði eftir „smá andrými“ til að lesa gögn um uppsagnir Borgarfulltrúi Vinstrisins segir heildarsýn skorta í skipulagsbreytingum í Ráðhúsi Reykjavíkur. 18 störf eru lögð niður og níu starfsmenn fluttir milli sviða. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Landbúnaður Þýðir ekkert að leggjast niður og væla Íslendingar þekkja Sigurbjörn Árna Arngrímsson einna helst í hlutverki íþróttalýsandans og skólameistarans, en færri vita að hann er bóndi líka og ræktar bæði fé og hross. Hann segir nauðsynlegt að hafa nóg að gera, annað sé ómögulegt. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Gagnrýnendur ekki sannfærðir um brottvísunarstöð eftir fund Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingar segir flokksmenn hafa gengið sátta frá fundi gærdagsins þar sem lög um brottvísunarstöð voru til umræðu. Fyrrverandi ritari Samfylkingarinna tekur undir en segir gagnrýnendur ekki sannfærða um brottvísunarstöð. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ernu Athichu enn leitað Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu leitar enn Ernu Athichu Jónsdóttur, 17 ára stúlku. Hennar hefur verið saknað í það minnst frá því á mánudaginn. Erna er með brún augu og sítt hár með ljósum strípum, grannvaxin og 170 sentímetrar á hæð. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ernu, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112. Ljósmynd / Aðsend Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands Ragnhildur Helgadóttir Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Umsóknarfrestur rann út 22. júní. Þessu er greint frá í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Umsækjendurnir eru: Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi Jón Magnús Eyþórsson, tölvunarfræðingur Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur Þórarna Gró Friðjónsdóttir, settur forstjóri Þriggja manna hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar og skilar ráðgefandi áliti til heilbrigðisráðherra sem skipar í stöðuna til fimm ára. RÚV / Rúnar Snær Reynisson Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Geta ekki slegið föstu hvort drónar hafi flogið yfir Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn kynnti í dag skýrslu um atvik í september þar sem lokað var fyrir umferð um flugvöllinn þar í borg vegna óþekkts flygildis yfir svæðinu. Ekki er hægt að slá því föstu að drónar hafi flogið þar yfir. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Fyrst Evrópuþjóða til að slökkva alveg á 2G og 3G Erlendir ferðamenn gætu lent í vandræðum með að ná símasambandi við komuna til landsins. Ísland er fyrsta landið í Evrópu til þess að slökkva alveg á 2G- og 3G-sendum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Sameyki tilkynnt fyrirfram um uppsagnir hjá borginni Forstjóri stéttarfélagsins Sameykis staðfestir að stéttarfélaginu hafi borist tilkynning um uppsagnir borgarinnar samkvæmt lögum um hópuppsagnir. Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar var sagt upp eða fært til í starfi í dag. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Umfangsmiklar uppsagnir í Ráðhúsi Reykjavíkur – Fækka starfsfólki um 40% Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar hefur verið sagt upp eða fært til í starfi. Alls stendur til að fækka starfsfólki um 40%. Uppsagnirnar hafa áhrif á 27 stöðugildi. 18 störf hafa verið lögð niður og 9 færð til á milli sviða. Borgin telur sig geta lækkað rekstrarkostnað um allt að 330 milljónir með breytingunni. Borgarstjóri segir ákvörðunina ekki tekna af léttúð. Hennar starfi fylgi erfiðar ákvarðanir. Tvær af fimm skrifstofum ráðhússins hafa verið lagðar niður, annars vegar Mannréttindaskrifstofa og hins vegar skrifstofa samskipta og viðburða. Öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar var sagt upp, Þá voru stefnumótunar- og þróunarteymi skrifstofu borgarstjóra og mannréttindaráðs einnig lögð niður. Þá verður skerpt á ráðningarbanni og viðveruskyldu innan miðlægrar stjórnsýslu og dregið úr ferðalögum borgarstarfsmanna. Formaður Sameykis staðfestir að stéttarfélaginu hafi borist tilkynning um hópuppsögn borgarinnar. FRÉTTAVAKT Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björgunarsveitir aðstoða kalt og hrakið göngufólk á Suðurlandi Björgunarsveitir á Suðurlandi eru í þremur útköllum vegna kaldra og blautra ferðamanna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hvað á að gera við einkennum hitaslags? Læknar segja mikilvægt að vera vakandi fyrir einkennum vegna mjög mikils hita. Samferðafólk eigi að fylgjast með einkennum hver annars og leita læknisaðstoðar sem fyrst ef einkenni eru alvarleg. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Útboð hafið fyrir framkvæmdir við fangelsið að Stóra-Hrauni Útboð vegna jarðvegsframkvæmda við nýtt öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni er hafið. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Madibo í fimm leikja banni Assim Madibo, leikmaður Katar, mun sæta fimm leikja banni fyrir brot sitt á Kanadamanninum Ismaël Koné í leik liðanna í síðustu viku. Katar er hins vegar úr leik á mótinu og því mun hann taka bannið út síðar. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlistargagnrýni Þunn þjóðhátíðarútgáfa/Bolur Íslands, sverð þess og skjöldur „Skýra heildarsýn skortir sem gerir það að verkum að ekkert á plötunni verður afgerandi og hún helst almennt flöt,“ segir Jóhannes Bjarki Bjarkason um Algrím hjartans með Hipsumhaps sem var plata vikunnar á Rás 2. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Mannréttindaskrifstofa lögð niður og uppsagnir á skrifstofu borgarstjóra Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur verið lögð niður. Samkvæmt heimildum fréttastofu var nokkrum sagt upp og aðrir færðir til í starfi. Stefnumótunar- og þróunarteymi skrifstofu borgarstjóra hefur einnig verið lagt niður. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Háskólinn á Bifröst í viðræðum við Byggðastofnun um lánveitingu Stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa fundað með Byggðastofnun vegna mögulegs láns til að gera upp fasteignir skólans. Rektor segir að verið sé að skoða möguleika sem snerta framtíð fasteigna háskólans í Norðurárdal. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar sagt upp Skrifstofa samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg hefur verið lögð niður. Starfsfólki var ýmist sagt upp eða það fært undir aðrar deildir. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Breyta Svíar klukkunni fyrir HM? Sænska karlalandsliðið í fótbolta mætir því Japanska í lokaumferð riðlakeppni HM í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 23:00 á íslenskum tíma, Svíar eru tveimur tímum á undan en ætla ekki að láta klukkuna stoppa sig. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin „Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“ Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddi bandarísk stjórnmál í Heimsglugganum á Morgunvaktinni. Hún segir mögulegt að vinsældir Trumps Bandaríkjaforseti geti aukist á ný því líkja megi mörgum fylgjendum hans við sértrúarsöfnuð. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut hafnað Nýr meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs hafnaði tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut. Skipulagið var bitbein í kosningabaráttunni og gamli meirihlutinn harmar að hönnunarferli sé komið aftur á byrjunarreit. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Evrópskir aðdáendur taka yfir Bandaríkin Evrópskir aðdáendur hafa nýtt sér að H