Hildur Björnsdóttir borgarstjóri skrifaði í tölvupósti til starfsfólks Ráðhússins síðdegis að frekari breytingar væru í farvatninu eftir þær sem samþykktar voru af borgarráði í dag. „Á næstu vikum og mánuðum verða kynntar frekari tillögur af þessu tagi sem ná til annarra þátta í rekstri borgarinnar en hagræðingarhópur borgarstjórnar vinnur nú að þeim,“ skrifar hún. Einnig stendur til að gera áherslubreytingar sem snúa að viðveru, ráðningum og ferðalögum á næstunni. Í bréfinu sagði Hildur að breytingarnar sem samþykktar voru á borgarráðsfundi í dag væru erfiðar en jafnframt nauðsynlegar. Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkur var sagt upp eða fært til í starfi. Tvær skrifstofur voru lagðar niður og öllum upplýsingafulltrúum sagt upp. „Við gerum okkur fulla grein fyrir því að ákvarðanir af þessu tagi snerta fólk með beinum hætti og þær eru hvorki einfaldar né teknar af léttúð,“ skrifar borgarstjóri. „Breytingar eru oft erfiðar á meðan þeim stendur en ég trúi því að þessar umbætur verði til góðs þegar fram líða stundir og leggi grunn að sterkari og betri framtíð fyrir borgina.“ Bréf Hildar í heild sinni Kæra samstarfsfólk í Ráðhúsinu. Breytingarnar sem borgarráð samþykkti í dag eru stórar og umfangsmiklar og þær eru okkur erfiðar. Þær hafa áhrif á okkur sjálf og samstarfsfólk okkar, þar á meðal fólk sem hefur starfað lengi hjá borginni og lagt mikið af mörkum. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að ákvarðanir af þessu tagi snerta fólk með beinum hætti og þær eru hvorki einfaldar né teknar af léttúð. Á sama tíma eru þessar breytingar nauðsynlegar. Við berum ábyrgð á því að tryggja hagkvæman og traustan rekstur borgarinnar, aðlaga hann að breyttu starfsumhverfi, einfalda skipulagið og stytta boðleiðir. Við munum einnig gera ákveðnar áherslubreytingar sem snúa að viðveru, ráðningum og ferðalögum. Þær breytingar verða kynntar betur á næstunni. Ég hét því að gera breytingar og taka til hendinni í rekstri borgarinnar. Það er eðlilegt að ég horfi fyrst til þeirra verkefna sem standa mér næst í þeim efnum, hér á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Á næstu vikum og mánuðum verða kynntar frekari tillögur af þessu tagi sem ná til annarra þátta í rekstri borgarinnar en hagræðingarhópur borgarstjórnar vinnur nú að þeim. Breytingar eru oft erfiðar meðan á þeim stendur en ég trúi því að þessar umbætur verði til góðs þegar fram líða stundir og leggi grunn að sterkari og betri framtíð fyrir borgina. Með kveðju, Hildur Björnsdóttir