Ekvador vann 2-1 sigur gegn Þýskalandi og fagnaði ógurlega þegar sætið í 32-liða úrslitum var í höfn. Liðinu var spáð góðu gengi fyrir mót en átti tvo arfaslaka leiki og skoraði ekki mark gegn Curaçao og Fílabeinsströndinni. Sigur var eina niðurstaðan sem dugði fyrir Ekvador og nú eru þeir komnir áfram upp úr riðlinum í fyrsta skipti síðan 2006. Þeir fara áfram sem eitt af bestu liðunum í þriðja sæti en 4 stig og 0 í markatölu duga þeim. Nú eru bara sex slík sæti í boði en Bosnía er einnig komin áfram með þeim hætti. Útlitið var svart fyrir Ekvador í upphafi leiks þegar Leroy Sane skoraði eftir tvær mínútur. Nilson Angulo jafnaði hins vegar metin skömmu síðar með góðu langskoti sem fór í gegnum klof Pavlovic. Það var eiginlega hálf ótrúlegt að Pavlovic náði ekki fæti í boltann, en fyrir vikið átti Neuer ekki möguleika á að verja. Sigurmarkið kom svo á 77. mínútu eftir mikla pressu Ekvadora. Gonzalo Plata lúðraði boltanum í þaknetið eftir hornspyrnu. Hér má sjá mörkin og fögnuðinn í leikslok. Ekvador vann 2-1 endurkomusigur gegn Þjóðverjum. Þeir höfðu eiginlega ekki sýnt neitt á mótinu hingað til en vöknuðu til lífs í seinni hálfleik.