Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Enn fækkar í hópi hamingjusamra á Íslandi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.6.2026 | 23:24 Enn fækkar í hópi hamingjusamra á Íslandi Streita og einmanaleiki hefur aukist meðal Íslendinga. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Í nýju fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, Talnabrunni, kemur fram að flestar mælingar sem embætti landlæknis hefur vaktað með reglubundnum hætti í tengslum við líðan fullorðinna hefur staðið í stað eða þróast til hins verra. Talnabrunnur er rafrænt fréttabréf landlæknis sem fjallar um þróun mælinga á andlegri heilsu, svefni, streitu, einmanaleika, hamingju og velsæld fullorðinna á Íslandi yfir tíu ára tímabil, frá árinu 2016 til ársins 2025. Fækkar í hópi þeirra sem meta andlega heilsu sína góða Fram kemur að hlutfall karla og kvenna sem meti andlega heilsu sína góða sé jafnt, eða um 70%. Hlutfall kvenna sem meta andlega heilsu sína góða hefur þó lækkað undanfarinn áratug en ekki urðu breytingar meðal karla. Mest fækkaði í hópi þeirra sem meta andlega heilsu sína góða meðal ungmenna á aldrinum 18–24 ára og þeirra sem eiga erfitt með að ná endum saman. Eldra fólk hamingjusamara Mælingar sem tengjast líðan eru jafnan lakastar meðal yngri aldurshópa en batna með hækkandi aldri. Eldra fólk greinir oftar frá betri andlegri heilsu, meiri hamingju og velsæld, minni streitu, minni fjárhagserfiðleikum og minni einmanaleika. Jafnt og þétt hefur fækkað í hópi mjög hamingjusamra meðal karla og kvenna undanfarinn áratug en árið 2025 töldu 53% karla og 57% kvenna sig vera mjög hamingjusama/n. Fyrir 10 árum síðan voru hlutföllin hins vegar 58% meðal karla og 64% meðal kvenna. Streita og einmanaleiki hafa aukist og dregið hefur úr hamingju. Aukning á hlutfalli þeirra sem upplifa mikla streitu í daglegu lífi skýrist fyrst og fremst af aukinni streitu meðal kvenna, en streita hefur aukist um sjö prósentustig hjá konum á síðastliðnum 10 árum. Fjárhagsstaða hefur mikið að segja Þá sýna mælingar að mikill munur er á líðan eftir fjárhagsstöðu. Þau sem eiga erfitt með að ná endum saman búa við lakari andlega heilsu, meiri streitu, styttri svefn, meiri einmanaleika, minni hamingju og minni velsæld en þau sem eiga auðvelt með það. Þessi munur hefur aukist undanfarinn áratug. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Enn fækkar í hópi hamingjusamra á Íslandi Rólegur júní endurspeglast í veiðitölum Tvö hollensk mörk á upphafsmínútunum Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Karl greiddi 30 milljón punda í tekjuskatt Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Botnfrosnar væntingar um efnahag Stærsti skjálftinn í meira en öld Lífshætta getur skapast á augnabliki Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Lífshætta getur skapast á augnabliki Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Enn fækkar í hópi hamingjusamra á Íslandi Rólegur júní endurspeglast í veiðitölum Tvö hollensk mörk á upphafsmínútunum Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Karl greiddi 30 milljón punda í tekjuskatt Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Einfalda og nútímavæða byggingarreglugerð Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Lífshætta getur skapast á augnabliki Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article