Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kaldi og rigning um helgina

Read Full Article →

Veðurspáin fyrir helgina er ekki mjög sumarleg. Það heldur áfram að rigna og von er á nokkrum vindi. Víkjum að hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands: Suðvestan gola eða kaldi og allvíða skúrir í dag. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi. Í nótt nálgast lægð úr suðri og það snýst í austanátt með rigningu sunnan- og vestanlands. Væta með köflum þar á morgun, en annars að mestu þurrt. Hiti breytist lítið, en þó hlýnar aðeins norðan heiða. Austan- og norðaustankaldi eða stinningskaldi og rigning á sunnudag. Hægari vindur síðdegis og styttir víða upp á Norðurlandi. Hiti 8 til 15 stig.

Share this article