Undirbúningur er að hefjast fyrir stækkun hafnarinnar í Straumvík vestan Hafnarfjarðar. Unnar voru tillögur að stækkun vestan Straumsvíkur í tengslum við Carbfix verkefnið sem síðar varð svo ekkert af. Þær tillögur og teikningar hafa farið í gegnum umhverfismat og fyrir skipulagsyfirvöld. Það liggja því fyrir heimildir til þess að Hafnarfjarðarbær geti hafið þær framkvæmdir. Lúðvík Geirsson hafnarstjóri segir mikla þörf fyrir stækkun hafnarinnar vegna mikillar aukningar á skipakomum til Hafnarfjarðar. „Það er orðið mikið álag í gömlu höfninni í Hafnarfirði. Þar eru miklir lausaflutningar á efni til iðnaðarsvæða, eins og á möl og sementi í malbiksstöðvar og steypustöðvar sem og útflutningi, á brotajárni aðallega. Það er vilji okkar að koma þessari skipaumferð og flutningum út í Straumsvík og draga þar með úr umferðarálagi jafnt á götunum og bryggjunum hjá okkur,“ segir Lúðvík. Lúðvík Geirsson hafnarstjóri. Umferð stórra skipa aukist mikið Vilji er til þess að Hafnarfjarðarhöfn verði áfram fyrst og fremst þjónustuhöfn fyrir togara, úthafskipaflotann og fiskibáta og einnig viðgerðarhöfn fyrir þjónustuaðila og flotkvína. Einnig hefur verið mikil aukning í farþegaskipum til Hafnarfjarðar og rannsóknaskipa. Umferð stórra skipa hefur stóraukist í Hafnarfirði á síðustu árum. Á síðustu fimm árum hefur komum stórra skipa, 100 metra á lengd og þaðan af lengri, fjölgað úr 400 á ári í 600 á ári til Hafnarfjarðar og Straumsvíkur sem er þriðjungsaukning. Aukninguna má fyrst og fremst rekja til fjölgunar togara og farmskipa sem rekja má til aukins innflutnings á lausavöru. Flutningur á lausavöru hefur verið einna umfangsmestur til Hafnarfjarðar. Veglagning og landfyllingar Undirbúningurinn núna felst í því að hanna fyrstu áfanga í hafnarframkvæmdunum í Straumsvík. Breyta þarf tímaáætlunum og verkplönum frá því sem var þegar rætt var um að Carbfix hæfi starfsemi þar. Ljósmyndin sýnir stöðuna í dag. Varnargarður og landfylling er hugsuð að stærstum hluta ofan á skerjunum sem liggja norðan við núverandi Súrálsbakka. Gert var ráð fyrir þremur nýjum hafnarbökkum í þeim plönum en stefnt er að því hefjast handa fyrst á gerð miðbakkans. Áður þyrfti að ráðast í gerð hafnargarða og landfyllingar en Lúðvík segir ljóst að unnt sé að vinna verkið í minni áföngum en upphaflega var ætlað. Málið er nú til skoðunar og ákvarðanatöku í hafnarstjórn Hafnarfjarðar og ákvarðanir ekki verið teknar enn um hvenær framkvæmdir hefjist. Leggja þarf veg meðfram ströndinni út að verksvæðinu til að flytja þangað efni. Öll leyfi liggja fyrir framkvæmdinni eins og fyrr segir. En endurskoða þarf verkáætlunina. Skipulag hafnarsvæðisins með þremur um það bil 200 metra bökkum. Dýpi á hafnarsvæði um 12 metrar. Viðlegubakki 1 var á sínum tíma hugsaður fyrir Carbfix. Nú eru hugmyndir um að útfæra framkvæmdir þannig að byrjað verði á bakka nr. 2 fyrir lausavöru og lausflutninga til og frá atvinnusvæðinu í Hellnahrauni. Ný aðkoma að höfninni yrði í gegnum ný undirgöng undir Reykjanesbraut sem eru austan við álverslóðina á móts við hreinsistöð bæjarins í Hraunavík og síðan meðfram ströndinni. Kostnaður við fyrri verkáætlun sem tók meðal annars mið af fyrirhugaðri starfsemi Carbfix var upp á 8 til 9 milljarðar króna. En verkið verður tekið í minni áföngum og kostnaður lækkar til samræmis við það. Engin breyting verður þó á heildarmyndinni frá þeirri mynd sem farið hefur í gegnum umhverfismat og fengið öll tilskilin leyfi. Þar með eru taldir þeir hafnargarðar sem þar er lýst. „Það sem myndi breytast er að við gætum farið hægar í ákveðnar landfyllingar og byrjað á öðrum viðlegubakka en upphaflega var ráðgert,“ segir Lúðvík.