Enn eru merki kólnunar á fasteignamarkaði samhliða því að verð hækkar minna en verið hefur og hlutfallslega fleiri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu seljast undir auglýstu söluverði en áður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Stofnunin hefur kannað hug fasteignasala sem telja nær allir að verðþróun sé ýmist stöðug eða að húsnæðisverð fari lækkandi. Það hefur lækkað að raunvirði síðasta hálfa árið. Hægt hefur á verðhækkunum á leigumarkaði og hefur leiguverðsvísitalan lækkað tvo mánuði í röð. Síðustu tólf mánuði hefur leiguverð lækkað lítillega að raunvirði. Húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.RÚV