Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Svali og Þórunn ráðin til Íslandsbanka

Read Full Article →

Íslandsbanki hefur ráðið Þórunni Ólafsdóttur í starf yfirlögfræðings og Svala H. Björgvinsson í starf mannauðsstjóra. Þau munu bæði tilheyra sviði Stefnumótunar og menningar og gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun bankans. Þórunn Ólafsdóttir býr yfir víðtækri reynslu af lögfræðistörfum í fjármálageiranum og hefur góða þekkingu á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja. Hún kemur til Íslandsbanka frá Fossum fjárfestingarbanka þar sem hún hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra rekstrar og þróunar, þar með talið sem yfirlögfræðingur. Þar gegndi hún lykilhlutverki í umbreytingu Fossa úr verðbréfafyrirtæki í fjárfestingarbanka, meðal annars með umsjón með starfsleyfisumsóknum og mótun stjórnarhátta félagsins. Sjá einnig Birgir og Svali í fram­kvæmda­stjórn Sjó­vá Þórunn hefur leitt fjölbreytt teymi, setið í framkvæmdastjórn og unnið náið með stjórn bankans, meðal annars sem ritari stjórnar, með áherslu á að tengja saman stefnu og framkvæmd. Svali H. Björgvinsson býr yfir mikilli reynslu af mannauðsmálum, stefnumótun og leiðtogastarfi. Hann kemur til Íslandsbanka frá Sjóvá þar sem hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra stefnumótunar, markaðsmála og viðskiptaþróunar. Þar lagði hann meðal annars áherslu á að samræma stefnu og menningu, einfalda skipulag og styrkja tæknilegar stoðir. Áður hefur Svali gegnt lykilhlutverkum hjá Icelandair, Kaupþingi og PwC þar sem hann hefur leitt mannauðsmál og byggt upp teymi.

Share this article