Innlent | Morgunblaðið | 26.6.2026 | 10:33 Beint flug eflir viðskipti ríkjanna He Rulong sendiherra Kína ávarpar gesti á samkomu í kínverska sendiráðinu í Reykjavík. mbl.is/Karítas Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, segir fulltrúa kínverska flugfélagsins Air China hafa hrifist af aðstæðum hér á landi en þeir hafi komið hingað til að undirbúa beint flug á milli Íslands og Kína. „Teymi frá Air China er statt í Reykjavík um þessar mundir. Þetta er nokkuð fjölmennur hópur, ríflega tíu manns, og þau dvelja hér í rúma viku. Ég hitti þau hér í sendiráðinu í gær og þau sögðust afar ánægð með fagmennsku Íslendinga og undirbúninginn af Íslands hálfu. Þau eru mjög bjartsýn og munu gera sitt ýtrasta til að beint flug verði að veruleika eins fljótt og auðið er en áætlað er að það hefjist fyrir októberlok,“ sagði He. Stefnt er að því að flugið verði þrisvar í viku og að millilent verði í Kaupmannahöfn á leiðinni frá Keflavík til Beijing. Flogið verður með breiðþotu og skapast með því töluvert flutningsrými. „Þannig að ég hygg að íslenskt atvinnulíf þurfi að huga að mörgu enda stendur vilji til að flugið standi undir sér. Það er ekki nóg að koma beinu flugi á laggirnar, það þarf líka að viðhalda því. Þannig að ég vona að íslenskt atvinnulíf heyri þessar fréttir og undirbúi sig þannig að þegar flugið hefst verði nægilegt farmflæði til að viðhalda fluginu allt árið um kring, vikulega,“ sagði He. He vakti athygli á því að 128 þúsund kínverskir ferðamenn hefðu komið til Íslands í fyrra sem væri metfjöldi. Hann sagði aðspurður gert ráð fyrir að kínverskum ferðamönnum fjölgaði enn meira með beina fluginu en vildi þó ekki nefna tölur í því samhengi. Þó mátti skilja á sendiherranum að þess væri ekki langt að bíða að hingað kæmu árlega yfir 150 þúsund ferðamenn frá Kína. Kínverska sendiráðið bauð völdum gestum á kynningarfund í kínverska sendiráðinu í gær. Yfirskrift fundarins skírskotaði til ályktunar sem samþykkt var hjá Sameinuðu þjóðunum, að frumkvæði Kína, um samtal ólíkra menningarsamfélaga. Athöfnin hófst með því að spilað var myndskeið með ræðu Wang Yi utanríkisráðherra Kína, sem lagði í ræðu sinni áherslu á alþjóðasamvinnu. Ríki, stór og smá, þyrftu að starfa saman á jafningjagrundvelli með hagsmuni heildarinnar í huga. Söguleg kynnisferð He tók upp þennan þráð í ræðu sinni og rifjaði upp för fyrstu sendinefndarinnar frá Íslandi til Alþýðulýðveldisins Kína árið 1952, undir forystu Jóhannesar úr Kötlum, en síðan hafi ríkin átt í blómlegu menningarsamstarfi. He tengdi svo boðskap Wang utanríkisráðherra við áherslu Xi Jinping forseta Kína á alþjóðasamvinnu. Lönd með ólík stjórnmálakerfi, eins og Kína og Ísland, þyrftu að efla samtalið og sömuleiðis væri brýnt að stórþjóðir heimsins tækju þátt í samtali ólíkra menningarheima. Ræddi Taívansmálið Jafnframt rifjaði sendiherrann upp fund Donald J. Trump Bandaríkjaforseta með Xi Jinping forseta Kína í Beijing í maí og lagði svo út frá samtölum leiðtoganna um Taívansmálið. Stuðningur við sjálfstæði Taívans væri jafn ósamrýmanlegur friði við Taívanssund og vatnið er eldinum. Þá gerði hann nýlega frétt Viðskiptablaðsins um rannsóknamiðstöðina á Kárhóli að umtalsefni og hrakti tilhæfulausar ásakanir um njósnastarfsemi á staðnum. Eftir ræðuna færðu fulltrúar Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins Dai Ke, yfirmanni viðskiptaskrifstofu kínverska sendiráðsins síðastliðin fjögur ár, lopapeysu að gjöf fyrir frábær störf í þágu viðskipta ríkjanna. En hann hverfur til starfa fyrir kínversku utanríkisþjónustuna í Istanbúl. Eftir að dagskránni lauk benti sérfræðingur í viðskiptum Íslands og Kína blaðamanni á að dregið hefði úr flugi frá Kína til Bandaríkjanna yfir Kyrrahafið eftir að tollastríð stórveldanna hófst. En það kynni að ýta undir eftirspurn eftir flugi frá Kína til Íslands og áfram til Bandaríkjanna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Suður-Afríka kom öllum á óvart Beint flug eflir viðskipti ríkjanna Gögn í virkri rannsókn birt á netinu „Þetta var versta vika lífs míns“ „99,99% líkur á forendur kjarasamninga bresti“ Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 235 látnir og hátt í 40 þúsund er saknað Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Beint flug eflir viðskipti ríkjanna Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum „Þetta er stórhættulegt“ Borgin viðurkennir veruleg mistök Hildur heitir að standa við stóru orðin Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Tuttugu og tveir sóttu um starfið Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Suður-Afríka kom öllum á óvart Beint flug eflir viðskipti ríkjanna Gögn í virkri rannsókn birt á netinu „Þetta var versta vika lífs míns“ „99,99% líkur á forendur kjarasamninga bresti“ Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Áhyggjuefni“ hvað verður fyrir niðurskurðarhnífnum Borgin viðurkennir veruleg mistök Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Verðbólgan eykst og mælist 5,2% Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum „Þetta er stórhættulegt“ Borgin viðurkennir veruleg mistök Hildur heitir að standa við stóru orðin Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Tuttugu og tveir sóttu um starfið Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku