Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Atvinnuleysi eykst um 29%

Read Full Article →

Viðskipti | Morgunblaðið | 26.6.2026 | 12:12 Atvinnuleysi eykst um 29% Það er samdráttur í byggingariðnaði. mbl.is/Eggert Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki „Við sjáum að atvinnuleysi í byggingariðnaði hefur aukist og samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru 1.158 atvinnulausir núna í maí samanborið við 896 í maí í fyrra sem er 29% vöxtur á milli ára og var vaxandi milli áranna þar á undan,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, um samdrátt sem farinn er að gera vart við sig í byggingariðnaði. Í gögnum frá Hagstofunni kemur fram að þeim sem starfa í byggingariðnaði fari fækkandi. „Nú í apríl voru tæplega 19.000 starfandi en á sama tíma í fyrra voru þeir 19.235 sem er fækkun um 250 manns.“ Spurður um stöðuna á fasteignamarkaðnum og sölu á nýjum íbúðum segir hann að íbúðum sem hafa stoppað á byggingarstigi hafi fjölgað. „Við sjáum íbúðir með óbreytt framvindustig milli talninga og síðustu tölur frá því í mars sýna töluverða breytingu milli ára þar sem íbúðum fjölgaði úr 781 íbúð í 1.437 íbúðir sem er talsverð aukning.“ Ingólfur segir að undir niðri séu efnahagsástandið, hægari hagvöxtur, hærri stýrivextir og þrálát verðbólga aðalþættirnir sem dragi úr fjárfestingum. „Síðan bætast við skatta- og gjaldahækkanir sem vega að greininni þannig að arðsemin hefur dregist saman því óseldar íbúðir á háum vöxtum hafa hrannast upp.“ Hertar reglur Seðlabankans um lánshæfi og háir vextir takmarka möguleika kaupenda og segir Ingólfur að þetta hafi tvenns konar áhrif. „Annars vegar dregur úr eftirspurn hjá kaupendum og svo hins vegar eykur þetta verulega kostnað við byggingar og sá hluti er mjög vaxandi núna þar sem aukinn fjöldi íbúða er til sölu í langan tíma og tikkar á háum vöxtum. Þarna liggja áhyggjur okkar því þegar kemur fram á veturinn er þetta þung byrði að bera, að vera með íbúðir sem hafa lengi verið óseldar.“ Ingólfur bætir við að í uppgjöri Arion banka og í síðasta hefti Fjármálastöðugleika Seðlabankans komi fram auknar áhyggjur af byggingariðnaðinum vegna vanskila. „Vanskilin hafa ekki aukist en það hafa komið fram auknar áhyggjur hjá þessum aðilum um að það kunni að breytast og að óveðursský séu fram undan.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Menningarnám, róður og klapp Sigurður Már Jónsson Alberto segir okkur frá Kúbu Fleira áhugavert Hildur heitir að standa við stóru orðin „Til hvers að vera með áætlun?“ Lægri ávöxtun hjá séreignarsjóðunum 235 látnir og hátt í 40 þúsund er saknað Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Svali og Þórunn til Íslandsbanka Verðbólgan eykst og mælist 5,2% Bryndís nýr vörumerkjastjóri Pepsi á Íslandi Krónan tekin inn í TIPS-kerfi Seðlabanka Evrópu ¡Hola! hlaut annað ljón í Cannes Jóhanna nýr framkvæmdarstjóri PROPR Landsbankinn spáir að verðbólga aukist næstu mánuði Samþykktu rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Laxey lauk 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði Bryndís nýr vörumerkjastjóri Pepsi á Íslandi Krónan tekin inn í TIPS-kerfi Seðlabanka Evrópu ¡Hola! hlaut annað ljón í Cannes Jóhanna nýr framkvæmdarstjóri PROPR Samþykktu rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða Tvö stórfyrirtæki skoða Hydram ¡Hola! hlaut brons í Cannes Viljayfirlýsing um uppbyggingu baðlóns og hótels Laxey lauk 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði Þriggja metra háir ísjakar í brottfararversluninni Krónan tekin inn í TIPS-kerfi Seðlabanka Evrópu Margir vilja læra á Claude Viljayfirlýsing um uppbyggingu baðlóns og hótels Icelandic Glacial verður alþjóðlegt Tvö stórfyrirtæki skoða Hydram Svali og Þórunn til Íslandsbanka Brynja nýr deildarstjóri Ísland fái gervigreindargagnaver Verðbólgan eykst og mælist 5,2% ¡Hola! hlaut brons í Cannes Pistlar » Sigurður Már Jónsson Menningarnám, róður og klapp Sigurður Már Jónsson Alberto segir okkur frá Kúbu Fleira áhugavert „99,99% líkur á forsendur kjarasamninga bresti“ Hitabylgjan skellur með fullum þunga á Danmörku Gögn í virkri rannsókn birt á netinu Sýndu óvart nöfn Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Svali og Þórunn til Íslandsbanka Verðbólgan eykst og mælist 5,2% Bryndís nýr vörumerkjastjóri Pepsi á Íslandi Krónan tekin inn í TIPS-kerfi Seðlabanka Evrópu ¡Hola! hlaut annað ljón í Cannes Jóhanna nýr framkvæmdarstjóri PROPR Landsbankinn spáir að verðbólga aukist næstu mánuði Samþykktu rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Laxey lauk 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði Bryndís nýr vörumerkjastjóri Pepsi á Íslandi Krónan tekin inn í TIPS-kerfi Seðlabanka Evrópu ¡Hola! hlaut annað ljón í Cannes Jóhanna nýr framkvæmdarstjóri PROPR Samþykktu rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða Tvö stórfyrirtæki skoða Hydram ¡Hola! hlaut brons í Cannes Viljayfirlýsing um uppbyggingu baðlóns og hótels Laxey lauk 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði Þriggja metra háir ísjakar í brottfararversluninni Krónan tekin inn í TIPS-kerfi Seðlabanka Evrópu Margir vilja læra á Claude Viljayfirlýsing um uppbyggingu baðlóns og hótels Icelandic Glacial verður alþjóðlegt Tvö stórfyrirtæki skoða Hydram Svali og Þórunn til Íslandsbanka Brynja nýr deildarstjóri Ísland fái gervigreindargagnaver Verðbólgan eykst og mælist 5,2% ¡Hola! hlaut brons í Cannes

Share this article