Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.6.2026 | 11:55 Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Lilja segir hitann ekki hafa eyðilagt ferðina. Fjölskyldan sé jákvæð og það verði góð saga í framtíðinni að fyrsta utanlandsferð sonarins hafi verið í hitabylgju. Ljósmynd/Aðsend Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hitabylgja í Evrópu Aldrei heitara í Sviss í júní: Hitamet fallið Kennarar í verkfall vegna hitabylgjunnar Gistu í almenningsgarði til að flýja hitann Hitamet féll í Bretlandi Þriðja barnið látið í hitabylgjunni » Fleiri tengdar fréttir Á götum Parísar er varla mann að finna sem ekki heldur á blævæng, viftu eða spreyvatnsbrúsa. Lilja Ósk Guðmundsdóttir er stödd í höfuðborg Frakklands með unnusta sínum, Einari Erni Magnússyni, og sex mánaða gömlum syni þeirra. Þegar mbl.is náði tali af henni stóð fjölskyldan í langri röð og beið eftir að komast upp í Eiffelturninn, sem verður lokað fyrr í dag vegna hitabylgjunnar sem nú geisar þar í landi og víðar í álfunni. Efsta hæð turnsins er einnig lokuð af sömu ástæðu. Óvenjulegt að sjá götur Parísar tómar Hitinn í París náði júnímetinu, 40,9 á miðvikudaginn og nálgaðist 40 gráður í gær. Þegar mesti hitinn er yfir daginn segir Lilja aðeins túrista vera á götunum. Íbúar Parísar haldi sig inni. „Það var mjög áhugavert í fyrradag þegar heitasti tíminn var, sem er yfirleitt á milli svona tvö og sex, þá fórum við út og það var eiginlega enginn úti. Það er endalaust af fólki hérna en göturnar voru eiginlega alveg tómar í kringum hótelið okkar,“ segir Lilja. Yfirvöld í París hafa gripið til ýmissa aðgerða til að hjálpa íbúum og túristum að takast á við ástandið. Áfengissala á sumum opinberum viðburðum hefur þegar verið bönnuð, margir skólar hafa lokað og almenningsgarðar eru opnir allan sólarhringinn. Aðspurð segist Lilja ekki hafa orðið vör við eftirfylgni á áfengisbanninu enn þá. „Við vorum einmitt að fara í gegnum security í Eiffelturninum og erum með vínflösku með okkur. Þeir sögðu ekkert, þeir sáu það kannski ekki,“ segir hún. Lilja var í röðinni í Eiffelturninum þegar blaðamaður náði af henni tali. Ljósmynd/Aðsend Frétt af mbl.is Banna áfengisneyslu á almannafæri í París „Kallað yfir röðina að vatnið væri búið“ „Það er búið að vera ógeðslega heitt hérna og við erum ekkert búin að vera mikið úti nema bara til þess að hoppa á milli verslana og til þess að fara í næstu lest. Ég held að það séu líka bara langflestir að því,“ segir Lilja. Fjölskyldan hafi þó heimsótt Versali í fyrradag og þá gengið aðeins um garðinn. „En við reyndum að halda okkur í skugga bara eins og allir aðrir.“ „Það var líka mjög áhugavert þegar við vorum í Versalahöllinni, þá var vatn uppselt í sjoppunni. Það var bara gos og sódavatn. Það var ótrúlega löng röð að fá vatn og ís og síðan var bara kallað yfir röðina að vatnið væri búið.“ Sagt að passa litla strákinn Sem fyrr segir er sonur Lilju sex mánaða gamall. Spurð hvernig það sé að vera með svona ungt barn í hitabylgju í stórborg segir hún það hafa gengið vel þrátt fyrir áskoranir. Það hafi aðeins eitt atvik komið upp sem mömmuhjartað hafi átt erfitt með, þegar þau voru í neðanjarðarlest sem var ekki með loftkælingu. „Þá var ég bara í kvíðakasti yfir litla stráknum.“ „Hann er alltaf í kerrunni sinni þegar við erum úti og hann er með viftu. Við tökum hann aldrei upp úr kerrunni þegar við erum úti, það bara er ekki í boði,“ segir Lilja. „Við höfum líka lent í því að vera til dæmis í lestinni og fólk komi til okkar og segi okkur að passa litla strákinn.“ „Hann er alltaf í kerrunni sinni þegar við erum úti og hann er með viftu. Við tökum hann aldrei upp úr kerrunni þegar við erum úti, það bara er ekki í boði,“ segir Lilja. Ljósmynd/Aðsend Erfitt að finna loftkælingu Aðspurð segir Lilja aðstæðurnar í París mikil viðbrigði fyrir íslenska fjölskyldu. „Það er svo heitt hérna. Ég hef áður verið í borgarferð í miklum hita en mér finnst þetta mikið heitara. Það er meira að segja mjög heitt í skugganum, þótt það sé mikið betra að halda sig þar.“ Þau hafi þó komið sér upp einhverjum bjargráðum til að geta notið ferðarinnar. „Vera fáklædd, bera á okkur sólarvörn og síðan bara vera inni. Við erum annaðhvort bara að hoppa á milli búða, inni á kaffihúsum eða að skoða söfn eins og Louvre og fara í Versalahöllina. Við vökvum okkur líka mjög vel og litla strákinn,“ segir Lilja og bætir við að ekki sé alls staðar loftkæling, sem hafi verið erfið uppgötvun. „Eins og þegar við vorum í Versalahöllinni þá var ekki loftkæling inni í helmingnum af höllinni. Það var mjög erfitt.“ Þá hafi einnig verið erfitt að finna hótel með loftkælingu. „Það kom mér líka mjög mikið á óvart en sem betur fer fundum við hótel með loftkælingu. Það er best í heimi að komast eftir langan dag upp á hótelherbergi.“ Fjölskyldan heimsótti Versali í fyrradag og gekk aðeins um garðinn en hélt sig í skugga eins og allir aðrir. Ljósmynd/Aðsend Frétt af mbl.is Gistu í almenningsgarði til að flýja hitann Spennt að komast heim til Íslands Aðspurð segir Lilja hitann ekki hafa eyðilagt ferðina. Fjölskyldan sé jákvæð og það verði góð saga í framtíðinni að fyrsta utanlandsferð sonarins hafi verið í hitabylgju. „Þegar ég kíkti kannski svona viku áður en við fórum út þá var spáin alls ekki svona, þá var bara spáð 19 til 28 gráðum. Síðan kom þetta í ljós en við erum bara að reyna að vera jákvæð. Þetta er fyrsta utanlandsferðin okkar saman sem fjölskylda,“ segir hún glöð. „Eins og núna erum við að fara að skoða Eiffelturninn. Það er geðveikt mikill hiti en það eru allir bara hressir og reyna að vera jákvæðir.“ Andinn sé mjög góður í borginni en litla fjölskyldan sé þó mjög spennt að komast heim til Íslands. Frétt af mbl.is Hitastig yfir 35 gráður hjá yfir 100 milljónum manna Tengdar fréttir Hitabylgja í Evrópu Aldrei heitara í Sviss í júní: Hitamet fallið Kennarar í verkfall vegna hitabylgjunnar Gistu í almenningsgarði til að flýja hitann Hitamet féll í Bretlandi Þriðja barnið látið í hitabylgjunni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Búast má við hundruðum eftirskjálfta á næstu vikum Nýtt met eftir markaregn á HM Yfir 35 gráður hjá 150 milljónum manna Kia boðar til sýningar og býður sérverð Paul Watson á leið til landsins Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Til hvers að vera með áætlun?“ Borgin viðurkennir veruleg mistök Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda 235 látnir og hátt í 40 þúsund er saknað Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda „Þetta er stórhættulegt“ Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Borgin viðurkennir veruleg mistök Hildur heitir að standa við stóru orðin „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Búast má við hundruðum eftirskjálfta á næstu vikum Nýtt met eftir markaregn á HM Yfir 35 gráður hjá 150 milljónum manna Kia boðar til sýningar og býður sérverð Paul Watson á leið til landsins Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sýndu óvart nöfn „Áhyggjuefni“ hvað verður fyrir niðurskurðarhnífnum Gögn í virkri rannsókn birt á netinu Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda „Þetta er stórhættulegt“ Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Borgin viðurkennir veruleg mistök Hildur heitir að standa við stóru orðin „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article