Bresk og bandarísk yfirvöld telja rússneskan hóp tölvuþrjóta hafa staðið að umfangsmikilli netárás á bílaframleiðandann Jaguar Land Rover í fyrra, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times . Árásin er talin sú kostnaðarsamasta í sögu Bretlands. Framleiðsla lá niðri í fimm vikur og er áætlað að áhrifin hafi numið um 2,5 milljörðum dala , sem nemur um 318 milljörðum króna, fyrir breska hagkerfið. Fyrirtækið sjálft varð fyrir um 350 milljóna dala tjóni á rekstrarárinu 2026. Upphaflega var talið að lauslega skipulagður hópur tölvuþrjóta, sem tengdist meðal annars Bretlandi, bæri ábyrgð á árásinni. Niðurstöður rannsókna lögreglu og sérfræðinga í netöryggi benda hins vegar nú til þess að rússneskir aðilar hafi staðið að baki árásinni. Ekki liggur fyrir hvort árásin hafi verið framkvæmd að undirlagi Kremlar eða með þegjandi samþykki rússneskra stjórnvalda. Yfirvöld vinna áfram að því að skýra möguleg tengsl árásarmannanna við rússneska ríkið. Ólíkt hefðbundnum lausnargjaldsárásum var aldrei farið fram á greiðslu fyrir endurheimt aðgangs að kerfum fyrirtækisins. Það hefur vakið spurningar um hvort markmiðið hafi fremur verið að valda efnahagslegu tjóni, heldur en í gróðaskyni. Sérfræðingar sem komu að rannsókninni segja að aðferðirnar sem beitt var beri frekar keim af starfsemi þjóðríkja en hefðbundinna netglæpamanna. Tölvuþrjótarnir nýttu sér veikleika í eldri tæknibúnaði fyrirtækisins og notuðu afar flókið lausnargjaldsforrit sem var mörgum hverjum sérfræðingnum ókunnugt. Microsoft mun hafa átt þátt í að rekja uppruna árásarinnar og upplýst Jaguar Land Rover um að rússneskur hópur bæri ábyrgð á innbrotinu. Viðbragðsaðgerðir voru unnar í samstarfi við breskar öryggisstofnanir, alþjóðleg netöryggisfyrirtæki og bandarísku alríkislögregluna, FBI. Árásin átti sér stað á sama tíma og fór að halla undan fæti í samskiptum Breta og Rússa, vegna stuðnings Breta við Úkraínu. Sú staðreynd hefur aukið áhyggjur af því að netárásir verði í auknum mæli notaðar sem tæki til að veikja efnahagslega innviði annarra ríkja án þess að gripið sé til hefðbundinna hernaðaraðgerða. Talsmaður bresku sakamálastofnunarinnar, National Crime Agency, sagði að stofnunin gæti ekki tjáð sig um einstök mál á meðan rannsókn stæði yfir, en benti á að margir umfangsmestu netglæpir sem beinst hafa gegn Bretlandi eigi uppruna sinn í Rússlandi og að sumir hópanna hafi tengsl við rússnesk stjórnvöld. Talsmaður Dmitrís Peskovs, upplýsingafulltrúa Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, hafnaði öllum tengingum við málið og kvaðst ekkert vita um árásina.
A sophisticated ransomware attack, attributed to a Russian group, targeted Jaguar Land Rover by exploiting vulnerabilities in legacy systems and deploying a novel, complex ransomware variant. The attack caused an estimated $2.5 billion in economic damage and a five-week production halt, with its methods suggesting state-sponsored activity rather than financially motivated cybercrime. While no ransom demand was made, indicating a goal of economic disruption, the incident was investigated in coordination with Microsoft, the FBI, and UK agencies.