Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þegar Bó valdi lög fyrir veiðitúrinn

Read Full Article →

Björgvin Halldórsson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, lést þann 9. apríl síðastliðinn 74 ára að aldri. Björgvin heitinn var mikill áhugamaður um laxveiði. Fyrir tíu árum birtist viðtal við hann í veiðiblaði Viðskiptablaðsins, þar sem hann var meðal annars fenginn til velja tíu lög fyrir veiðitúrinn. Við endurbirtum nú þetta viðtal en í því skín frásagnargleði hans í gegn, sem og áhugi hans á veiði og góðum græjum. „Ég er mikill áhugamaður um stangveiði á flugu þó að ég hafi byrjað frekar seint á lífsleiðinni að veiða,“ sagði Björgvin Halldórsson, í viðtali í Veiði, sérblaði Viðskiptablaðsins, sem kom út þann 9. júní árið 2016. „Það var ekki fyrr en 1993 sem veiðiástríðan náði tökum á mér og hún hefur ekki sleppt mér síðan.“ Björgvin sagðist bara vilja það besta þegar kæmi að veiði. „Ég hef unun af að handleika góðar græjur eins og þekkt er í mínum kunningjahópi. Ég og nokkrir góðir félagar mínir höfum stofnað okkar eigið veiðifélag, sem ber alvöru „erlendis“ nafn eða „Top of the Line Angling Club – Iceland.“ Ekki á húninum klukkan sjö Björgvin sagðist taka því rólega þegar hann væri að veiða, mikilvægt væri að njóta þess að vera í góðum félagsskap og fallegu umhverfi. „Ég er ekki á húninum klukkan sjö á morgnana. Ég leyfi deginum að byrja og ánni að hitna og fer rólega í þetta. Sérstaklega er þetta mikilvægt síðsumars. Það er ekkert vit í að rjúka út og byrja að kasta á ískalda á, þegar maður veit að með morgninum hlýnar og þá aukast mjög líkur á að fiskur taki.“ Björgvin veiddi í fjölmörgum ám víða um land með vinum sínum. Hann sagði að Selá í Vopnafirði væri í uppáhaldi og ein ferðin þangað hefði verið mjög eftirminnileg. „Leið okkar lá í Selá í Vopnafirði fyrir nokkrum árum. Við vorum á efra svæðinu, Leifsstöðum – eða Hilbilly Heaven eins og við köllum það. Aðstæðurnar eru frekar frumstæðar miðað við það sem best gerist. Þetta er svona kofi. Meira að segja ljósavélin var biluð. En þarna var ægifagurt og eiginlega svona „extreme“. Við gerðum fína veiði og ákváðum að fara aftur árið eftir og tókum þá aðalsvæðið. Þá gerðist eitt skemmtilegasta atvik sem ég hef lent í í veiði.“ Björgvin Halldórsson þenur tvíhenduna á austurbakkanum fyrir neðan Laxfoss í Norðurá en til að komast þangað vaða veiðimenn yfir ána fyrir ofan fossbrúnina. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) María og Jósef á reiðhjóli „Það er blautur og fremur kaldur veiðidagur að baki í Selá í Vopnafirði. Við félagarnir rennum í hlað við veiðihúsið. Menn eru kátir. Veiðin er búin að vera fín og hún vegur upp á móti vosbúðinni – bleytunni og kuldanum. Ungt par frá Frakklandi er á bílaplaninu og þau eru greinilega köld og hrakin. Parið er rennandi blautt og maðurinn ber sig aumlega. Þau eru á löngu hjóli sem þau stíga saman. Á miðju hjólinu er eins konar karfa. Í henni er lítið barn – kornabarn. Ég sá þetta og missti út úr mér: „Vá þetta er „extreme“!“ Strákarnir hlæja en öllum er ljós sú erfiða staða sem ungu hjónin eru í og sérstaklega þar sem ekki er útlit fyrir uppstyttu í bráð. Hvað eru þið að þvælast um á reiðhjóli á Íslandi, spyr ég. Sá franski upplýsir að þau séu búin að vera á hjólinu í rúman hálfan mánuð, en nú sé veðrið bara einfaldlega svo slæmt að þau verði að komast í skjól til að þurrka föt og ná hita í sig og barnið. Ráðskonan í veiðihúsinu segir bannað að hleypa fólki í gistingu. Það var hins vegar eitt herbergi laust í húsinu og eftir nokkrar fortölur okkar félaganna verður það úr að parið fær að eyða nóttinni í gædaherberginu í kjallaranum. Mér fannst svolítið súrrealískt að vakna morguninn eftir við tæran grát kornabarns. Svo þegar við vorum komnir í morgunmat þá voru hjónin hjóluð af stað með barnið eftir að hafa fengið gott að borða. Þá rann upp fyrir okkur að þetta voru bara María og Jósef í nútímanum með Jesús. Mætt á reiðhjóli og fengu að gista nánast í fjárhúsinu. Okkur fannst þetta æðislegt og ég held að þetta atvik standi upp úr í mínum veiðiferðum síðustu árin.“ Topp tíu listinn Björgvin sagðist hlusta mikið á tónlist í veiðiferðum, bæði í bílnum og í veiðihúsinu við matseldina. „Það er þá aðallega kántrítónlist sem passar við landslagið í bland við aðra smelli. Stundum tökum við gítara með. Ég á líka iPod með mörg þúsund lögum. Stundum er hann settur á „random“ og þá kemur ýmislegt skemmtilegt í ljós sem kitlar eyrað.“ Bona Sera — Louis Prima Rambling Boy — Vince Gill og Charlie Haden Nú sefur jörðin — Þorvaldur Blöndal / Davíð Stefánsson Í fjarlægð — Karl O. Runólfsson / Valdimar Hólm Hallstað A Change is Gonna Come — Sam Cooke Lately I’ve Let Things Slide — Nick Lowe Svarta rósin frá San Fernando — Björgvin og Hjartagosarnir Ideale — Tosti We Are Gonna Hold On — George Jones Crazy Moo — Merle Haggard Viðskiptablaðið vottar fjölskyldu og vinum Björgvins innilega samúð. Fjallað var um málið í sérblaðinu Veiði , sem fylgdi Viðskiptablaðinu.

Share this article