- What: Record-breaking heat in Denmark
- Impact: Unusually high temperatures recorded across the country
Maður kælir sig í hitanum í Kaupmannahöfn í gær.EPA / Mads Claus Rasmussen Hitamet var sett í Danmörku í nótt. Á eyjunni Fanø fór hitinn lægst í 22,5 stig. Þetta var því hlýjasta júnínótt í landinu frá upphafi mælinga 1874. Nóttin var óvenjuhlý í stórum hluta Danmerkur. Víða fór hitinn ekki undir 20 stig í nótt, þá helst í suðurhluta landsins, líkt og sagt er frá á vef danska ríkisútvarpsins, DR . Hitabylgja hefur leikið íbúa víða í Evrópu grátt á síðustu dögum og hitamet hafa verið slegin í Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi svo dæmi séu tekin. Tugir dauðsfalla hafa orðið í álfunni vegna hitans.