Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.6.2026 | 7:15 Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Hvalveiðar Hvalirnir sem veiðst hafa í vikunni fengust djúpt úti af Faxaflóa. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Landhelgisgæslan fylgist með ferðum skips Pauls Watsons, Bandero, sem er á leið til landsins, en eftir því sem Watson hefur greint frá á Facebook er skipið væntanlegt á Íslandsmið um helgina. Segir Ásgeir Erlendsson samskiptastjóri Landhelgisgæslunnar í samtali við Morgunblaðið að viðbrögð Gæslunnar við komu hans muni ráðast af tilefninu. Hann staðfestir að Gæslan sé með áform um hvernig við verði brugðist gefist tilefni til þess. „Landhelgisgæslan fylgist með skipinu og er meðvituð um þau ummæli sem fallið hafa, sérstaklega á samfélagsmiðlum, og mun halda áfram að fylgjast með, vakta lögsöguna og grípa inn í ef með þarf,“ segir Ásgeir. „Ef framin verða lögbrot á hafsvæðinu umhverfis Ísland hefur Gæslan það hlutverk að annast löggæslu á svæðinu,“ segir hann og nefnir að ef að lífi fólks, heilsu og eignum þess verði stefnt í hættu innan efnahagslögsögunnar muni Gæslan að sjálfsögðu grípa inn í. „Landhelgisgæslan fer með löggæslu á hafsvæðinu umhverfis Ísland,“ segir Ásgeir. „Við höfum verið í samskiptum við Greiningardeild embættis Ríkislögreglustjóra vegna þessa,“ segir hann og staðfestir aðspurður að Gæslan viti hvar skipið sé statt. Það sé þó ekki komið inn í efnahagslögsögu landsins enn sem komið er og hann vilji ekki greina nánar frá staðsetningu þess. Í téðri Facebook-færslu hefur Watson í hótunum og segir að þegar skip hans komi á Íslandsmið muni veiðarnar stöðvast. Hefur hann greint frá því að væntanlegar aðgerðir við Ísland beri nefnið „Oparation 86“ og er þar vísað til þess þegar hann og félagar hans sökktu tveimur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn það ár. Í færslunni heldur Watson því ranglega fram að veiðarnar séu ólöglegar og virðist heldur ekki vera kunnugt um veiðikvóta sumarsins, en hann segir ætlunina að veiða 118 langreyðar í sumar þegar raunin er sú að kvótinn er upp á 150 dýr. Hann kveðst sannfærður um að honum og félögum hans muni takast að stöðva veiðarnar í sumar, en þar verður væntanlega við ramman reip að draga þegar litið er til ummæla samskiptastjóra Landhelgisgæslunnar hér að framan. Hvalveiðivertíðin er í fullum gangi og bar það til tíðinda í gær að Hvalur 9 kom með tvær langreyðar að landi í Hvalfirði. Um miðja viku landaði Hvalur 8 einu dýri. Báðir hvalbátarnir héldu til veiða á ný strax eftir löndun og voru á miðunum djúpt úti af Faxaflóa þegar Morgunblaðið ræddi við Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf., í gær. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons „Fólk áttar sig engan vegin á vinnunni á bakvið þetta“ Fyrstu sex söngvaranir ráðnir til Óperunnar Svona á að gera góða nautasteik! Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Segir utanaðkomandi áhrif valda verðbólgu Hitabylgjan slær öll met Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Rúmlega 8.700 umsóknir bárust Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Mótmæla frávísunarkröfu Skúla Örlítill meirihluti vill áframhald viðræðna Beint flug eflir viðskipti ríkjanna „Þetta er stórhættulegt“ „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons „Fólk áttar sig engan vegin á vinnunni á bakvið þetta“ Fyrstu sex söngvaranir ráðnir til Óperunnar Svona á að gera góða nautasteik! Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breytingarnar of hraðar og aggressívar Heimsbyggðin réttir Venesúela hjálparhönd Hitabylgjan slær öll met Beint flug eflir viðskipti ríkjanna Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Rúmlega 8.700 umsóknir bárust Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Mótmæla frávísunarkröfu Skúla Örlítill meirihluti vill áframhald viðræðna Beint flug eflir viðskipti ríkjanna „Þetta er stórhættulegt“ „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Loka

Share this article