Innlent | mbl | 27.6.2026 | 17:02 Stórt hrun við Reynisfjöru – mildi að ekki varð slys Þórir segir af miklu hruni úr berginu við Reynisfjöru, þriðja stóra hruninu á 20 árum. Segir hann mesta mildi að ekki varð stórslys. Ljósmynd/Þórir Níels Kjartansson Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Reynisfjara Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Skurðirnir standa fyrir sínu Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka » Fleiri tengdar fréttir „Ég sá þetta fyrst bara fyrir tveimur dögum á [Facebook-síðunni] Baklandi ferðaþjónustunnar, þar var einhver leiðsögumaður að segja að hann hefði séð einhverja steina sem hann kannaðist ekki við,“ segir Þórir Níels Kjartansson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hins fornfræga Víkurprjóns í Vík í Mýrdal, sem nú er kominn á eftirlaun og hefur gaman af að líta til náttúrunnar í nærumhverfi sína, þar á meðal Reynisfjöru sem hér er umræðuefni. Greint hefur verið frá miklum hamskiptum þessa fjölsótta ferðamannastaðar hér á mbl.is undanfarin misseri, ekki síst þegar við sjálft lá að fjaran hyrfi með öllu. Frétt af mbl.is Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar „Af því að sjórinn liggur enn þá alveg upp að nefinu eða stuðlaberginu sést svo illa austur fyrir vestan megin frá,“ segir Þórir sem tók meðal annars myndir með fulltingi dróna til að sýna breytinguna. „Þetta er gríðarmikið efni sem hefur hrunið niður og mér finnst það ekki ótrúlegt, af því að sjórinn er búinn að lemja þarna á stuðlaberginu svo heiftarlega, að einhver titringur hafi orðið í berginu sem kom þessu af stað,“ heldur framkvæmdastjórinn fyrrverandi áfram. Fegurð og háski fer saman í heillandi landslagi Reynisfjöru. Oft er flagð undir fögru skinni segir máltækið og svo er sannarlega hér. Ljósmynd/Þórir Níels Kjartansson Alltaf morandi í fólki Hann segir þriðja stóra hrunið á 20 árum nú hafa átt sér stað. „Ég hef gaman af að taka myndir af breytingum hér í kringum mig, bæði þessum hamförum í Reynisfjöru og líka landbrotinu hér í Víkurfjöru sem ég á myndir af langt aftur í tímann,“ segir Þórir sem fæddist á sveitabæ í Mýrdal en flutti svo á brott áður en hann sneri aftur. Hann segir stórslys hafa getað orðið í síðasta hruni. „Það er nánast öruggt að hefði þetta hrun orðið að degi til og þetta verið með gamla sniðinu þannig að fólk hefði getað farið þarna austur fyrir er annað útilokað en að þetta hefði orðið að slysi, þarna er alltaf allt morandi í fólki kringum hellinn, alla daga. Það var algjör hundaheppni að þetta skyldi gerast núna á meðan var lokað þarna og enginn á svæðinu,“ segir Þórir. „Þarna er alltaf allt morandi í fólki kringum hellinn, alla daga. Það var algjör hundaheppni að þetta skyldi gerast núna á meðan var lokað þarna og enginn á svæðinu.“ Ljósmynd/Þórir Níels Kjartansson Hvað finnst þér um öryggismál þarna í fjörunni úr því þú þekkir vel til á staðnum? Viðmælandinn hugleiðir spurninguna áður en hann svarar. „Veistu, það er afskaplega erfitt að ráða við það. Ég get aldrei tekið undir það þegar fólk er að tala um það að þessir útlendingar séu svo vitlausir að þeir kunni ekkert að varast þetta,“ svarar hann. Frétt af mbl.is Skurðirnir standa fyrir sínu Útsog sterkt sem og frákast „Það er svo aðdjúpt þarna að landsjórinn verður svo sterkur að hann brotnar yfirleitt ekki fyrr en uppi í fjörunni. Hún er líka brött þannig að útsogið verður mjög sterkt ef fólk lendir í því og svo kemur frákast frá stuðlaberginu sem kemur þá eiginlega í bakið á fólki,“ heldur Þórir áfram og bætir því við að engin regla sé á sjólaginu. Frétt af mbl.is Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð „Ég var þarna í vor þegar landbrotið var sem mest. Þá var ég þarna í einn og hálfan tíma og þá kom eitt ólag sem var svo stórt að það flæddi alveg heim að dyrum á veitingastaðnum. Þetta er svo misjafnt, þú getur verið lengi þarna niðri í fjöru og sjórinn fer bara upp að sama punkti alltaf en svo kemur allt í einu eitt stórt ólag eftir langan tíma, það er ekki von að útlendingar geti varað sig á þessu. Þarna þurfa bara að vera góð viðvörunarskilti og svo þarf bara að vona að fólk hafi augun hjá sér,“ segir Þórir Níels Kjartansson að lokum. Tengdar fréttir Reynisfjara Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Skurðirnir standa fyrir sínu Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stórt hrun við Reynisfjöru Skildu jöfn á Húsavík Bretinn á ráspól í Austurríki Átján daga gömlu barni bjargað úr rústum í Venesúela Dramatískt jafntefli í Laugardalnum Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Auglýsa eftir húsnæði undir brottfararstöð Breytingarnar of hraðar og aggressívar Segir utanaðkomandi áhrif valda verðbólgu Stenst ekki skoðun Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Trump í Skagafirði Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Stenst ekki skoðun ESB leggur á nýtt gjald Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Stórt hrun við Reynisfjöru Skildu jöfn á Húsavík Bretinn á ráspól í Austurríki Átján daga gömlu barni bjargað úr rústum í Venesúela Dramatískt jafntefli í Laugardalnum Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Stenst ekki skoðun Útboð að hefjast í rannsóknahúsinu Hitabylgjan slær öll met Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Trump í Skagafirði Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Stenst ekki skoðun ESB leggur á nýtt gjald Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Loka