Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Göngukona slasaðist við Hólmavatn Brynja Dögg Friðriksdóttir Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna konu sem hafði verið á göngu og slasast við Hólmavatn suðaustur af Sauðárkróki í Skagafirði fyrr í kvöld. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi flutt konuna suður til aðhlynningar. Þyrlan lenti með konuna rúmlega níu í kvöld við Landspítalann í Fossvogi. Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Skip Watsons komið inn fyrir 200 sjómílna mörk Sigrún Björk Hjartardóttir Skipið Bandero. RÚV / Vefsíða Captain Paul Watson Foundation Bandero, skip hvalverndarsinnans Paul Watson, er komið inn fyrir 200 sjómílna mörk íslensku efnahagslögsögunnar. „Áhöfn Bandero er nú innan 200 mílna marka Íslands. Landhelgisgæsla Íslands er að eyða peningum í að hafa auga með okkur,“ skrifar Watson í færslu á Facebook. Watson segir að Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., ætti að senda Gæslunni reikning og sakar Landhelgisgæsluna um að vernda það sem hann kallar glæpsamlega starfsemi. Skipið Bandero á vegum samtaka Watsons er á leið til landsins í þeim tilgangi að gera allt til að koma í veg fyrir veiðar Hvals hf. að því er Watson segir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Ölfus Risa dróni ber áburð á golfvöllinn í Þorlákshöfn Stór og mikill dróni gegnir nú því hlutverki á golfvellinum í Þorlákshöfn að bera áburð á völlinn, ýmist í kornaformi eða fljótandi formi. Mikil ánægja er með störf drónans. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Serbía Forseti Serbíu hyggst segja af sér innan nokkurra vikna Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, hyggst ætla að segja af sér innan nokkurra vikna. Mótmælendur hafa kallað eftir því að þingkosningum verði flýtt í landinu. Seinna kjörtímabili Vučić átti að ljúka á næsta ári. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Ógeðfellt að kenna leiðangur við skemmdarverk Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir fyrirætlun samtaka Pauls Watsons með komu skips þeirra til landsins til að stöðva hvalveiðar og kenna leiðangurinn við skemmdarverk sé ógeðfelld og að slíkt geri ekki alvöru Náttúruverndarsamtök ekki. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: England leiðir gegn Panama og Króatar ætla áfram Nú er komið að lokadegi riðlakeppni HM í fótbolta og því fer að koma mynd á 32-liða úrslitin. Fyrst er leikið í L-riðli. Þar mætast England og Panama og samtímis spila Króatar við Ganverja. Þá er komið að K-riðli. Þar eru Kólumbía og Portúgal örugg áfram en Kongó á möguleika á því að komast áfram sem þriðja sætis lið. Loks er það J-riðill þar sem Argentínumenn spila við Jórdaníu og Alsír og Austurríki eigast við. Hér fylgjumst við með leikjunum í L-riðli og birtum helstu atvik. FRÉTTAVAKT Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Dan Sullivan mætir Dan Sullivan í forvali Repúblikana Dómari í Alaska hefur úrskurðað að alnafni Dan Sullivan, öldungadeildarþingmanns Repúblikanaflokksins, fái að bjóða sig fram gegn nafna sínum í forvali flokksins í ágúst. Þingmaðurinn hefur fordæmt framboðið og segir það geta ruglað kjósendur. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Kosningasamkomulag um ríkislóðir kann að vera ólögmæt ríkisaðstoð Borgarlögmaður telur að Reykjavíkurborg kunni að hafa veitt íslenska ríkinu ólöglega aðstoð þegar samkomulag um uppbyggingu á 1.400 ríkislóðum var undirritað skömmu fyrir sveitarstjórnarkosningar. Nýr meirihluti skoðar möguleikann á uppsögn. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Yfir fjórtán hundruð hafa fundist látin Bjarni Pétur Jónsson Að minnsta kosti tuttugu alþjóðlegar björgunarsveitir eru komnar til Venesúela til að leita að fólki sem er fast í húsarústum eftir jarðskjálftana á miðvikudag. 1.430 hafa fundist látin en þúsunda er enn saknað. Um þrír sólarhringar eru síðan skjálftarnir tveir riðu yfir og íbúar eru afar ósáttir við það hversu hægt björgunarstörfum miðar. Margir grafa með höndunum til að ná til ástvina í rústunum. Að minnsta kosti tuttugu alþjóðlegar björgunarsveitir eru komnar til Venesúela til að leita að fólki. Enn heyrist í fjölda fólks undir rústunum en víða vantar tækjakost til að ná til þeirra. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Hjólreiðar Ingvar og Rakel báru sigur úr býtum í Öskjuhlíð Allir komust heilir í gegnum krefjandi aðstæður þegar Íslandsmótið í ólympískum fjallahjólreiðum var haldið í dag. Keppt var í Öskjuhlíð. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tilkynnt um tvær stórfelldar líkamsárásir í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra í dag þegar einstaklingur var handtekinn vegna gruns um stórfellda líkamsárás. Lögregla notaði einnig dróna. Fjórir voru handteknir í tveimur aðskildum málum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Stangarbærinn minnir á gróðurhús Mikill gróður hefur sprottið upp inni í bænum Stöng í Þjórsárdal en gróðursældina má rekja til hönnunar á nýrri yfirbyggingu yfir bæinn. Minjastofnun vinnur nú að lausn á vandamálinu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Stórt hrun úr Reynisfjalli úr minnst 100 metra hæð Stórt hrun varð úr Reynisfjalli austan við Hálsanefshellinn í stuðlaberginu. Heimamaður segir að hrunið komi úr að minnsta kosti 100 metra hæð. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Tíu ár frá sigri Íslands á Englandi Í dag eru liðin tíu ár frá sigri Íslands á Englandi í 16-liða úrslitum Evrópumótsins. Sigurinn er vitanlega eitt af stærri augnablikum íslenskrar íþróttasögu. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL KrakkaRÚV Hver fann Tútankamon? Gröf egypska faraósins Tútankamon fannst fyrir algjöra tilviljun í nóvember 1922. Vera Illugadóttir segir þessa merkilegu sögu í nýjum útvarpsþáttum fyrir krakka á öllum aldri. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Leita að húsnæði undir nýja stofnun Fiskistofa á Akureyri hefur verið á hrakhólum síðustu ár vegna myglu. Fiskistofustjóri leitar að nýju húsnæði fyrir Stofnun atvinnuveganna sem verður opnuð næstu áramót Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Skagafjörður Spennan magnast vegna landsmóts hestamanna á Hólum Mikil spenna og eftirvænting er hjá hestamönnum landsins og öðru áhugafólki um íslenska hestinn vegna landsmóts hestamanna, sem fer fram á Hólum í Hjaltadal 5. til 11. júlí. Reiknað er með um átta þúsund manns á mótið. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sviss Skemmtistaðurinn í Crans Montana verður aldrei opnaður aftur Skemmtistaðurinn Le Constellation í Sviss verður ekki opnaður á ný. 41 lést og 115 slöstuðust þegar eldsvoði kom upp á skemmtistaðnum á nýársnótt. Breyta á staðnum í rými tileinkað ungu fólki. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Erlendum umsóknum fækkar en innlendum fjölgar Erlendum umsóknum í Háskóla Íslands fækkar á milli ára en innlendum umsóknum fjölgar. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem að fækkunar verður vart í erlendum umsóknum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Gerum allt sem hægt er til að stöðva hvalveiðar, segir Paul Watson Paul Watson segir allt verða gert til að koma í veg fyrir veiðar Hvals á langreyði. Skip samtaka hans er nú á leið til landsins. 27. júní 2026 kl. 12:56INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Dularfulls andláts kínversks leikara minnst við Sæbraut Borgarbekkur við göngustíginn meðfram Sæbraut í Reykjavík er orðinn að minningarbekk um kínverskan söngvara og leikara sem lést fyrir aldur fram í fyrra. Miklar samsæriskenningar hafa verið á sveimi um það hvernig andlát hans bar að. 27. júní 2026 kl. 12:48ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Fjöldi fólks enn á lífi í rústunum Enn er leitað í kappi við tímann að fólki á lífi í húsarústum eftir jarðskjálftana í Venesúela. Forseti landsins segir enn von á að fleiri finnist en hún fari þverrandi. 27. júní 2026 kl. 12:32ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Rúmlega fimmtíu ára gamalt hitamet slegið Nýtt hitamet var sett í Danmörku eftir hádegi í dag þar sem hitinn fór í 36,8 stig. Fyrra metið var frá því í ágúst 1975. 27. júní 2026 kl. 11:44INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Rússar enn með aðgang að tólum Cellebrite Rússnesk yfirvöld eru sögð hafa brotist inn í síma pólitísks fanga með búnaði frá ísraelska fyrirtækinu Cellebrite. Rannsóknargögn úr virkri rannsókn héraðssaksóknara á Íslandi birtust í kynningarmyndbandi fyrirtækisins. 27. júní 2026 kl. 11:36ERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Ein versta hitabylgja sem dunið hefur yfir Evrópu Jafn svæsin hitabylgja og nú geisar í Evrópu hefði verið óhugsandi fyrir fimmtíu árum, að sögn sérfræðinga í loftslagsmálum. Hlýnun Jarðar vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum magnar hitann langt umfram það sem áður hefði getað gerst. 27. júní 2026 kl. 11:07INNLENDAR FRÉTTIR Menning Sex söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Sex söngvarar hafa verið ráðnir til Þjóðaróperunnar fyrir fyrsta starfsár hennar. 27. júní 2026 kl. 10:19INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Skaut á rektor fyrir að mæla með Wikipediu Ragnhildur Helgadóttir lagaprófessor ræddi um stjórnarskrárbreytingar, muninn á EES og ESB, viðræðurnar 2009-2013 og Njálu í þættinum Sama viðtalið um ESB. 27. júní 2026 kl. 10:18INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Alexander Kristjánsson Gotta-rennibrautinni í sundlauginni á Selfossi hefur verið lokað tímabundið vegna slysahættu. Í tilkynningu frá Sveitafélaginu Árborg kemur fram að ákvörðunin sé tekin þar sem börn hafi slasast í rennibrautinni. Hún verði því lokuð meðan farið er yfir öryggismál og leitað lausna til að tryggja örugga notkun til framtíðar. Margir bæjarbúar kveðja sér hljóðs í athugasemdum við tilkynningu bæjarins á Facebook. Segja margir að lokunin sé löngu tímabær; rennibrautin sé slysagildra. Gotta-rennibrautin er gul og kassalaga, eins og ostur í laginu. Gengið er upp þröngan stiga en mjög lágt er til lofts, bæði í stiganum og í brautinni sjálfri. G