- What: A vessel was found not transmitting its location via AIS.
- Impact: The vessel was monitored by Icelandic coast guard.
Bandero, skip hvalverndarsinnans Paul Watson, var ekki með kveikt á staðsetningarbúnaði skipsins þegar það sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu á níunda tímanum í kvöld . „Áhöfn eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar TF-SIF fór í eftirlitsflug um sunnanverða lögsöguna og kom auga á þetta skip sem þá var rétt ókomið inn í efnahagslögsöguna,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu. Áhöfnin á Bandero sagði að sjálfvirkur staðsetningarbúnaður skipsins væri bilaður. Staðsetningarbúnaður skipa er mikið öryggismál sjófarenda. „Þar sem skipið var ekki að senda sjálfvirka staðsetningu skipsins um AIS-búnað eins og alþjóðalög kveða á um, hafði Landhelgisgæslan samband við skipið og óskaði eftir því að skipið myndi senda upplýsingar um staðsetningu á klukkustundarfresti með öðrum leiðum,“ segir Ásgeir. TF-SIF er komin til baka úr eftirlitsfluginu. Íslensk efnahagslögsaga er alþjóðlegt hafsvæði þar sem skipum er almennt frjáls för. „En ef lífi og heilsu þeirra sem eru á hafsvæðinu er ógnað með einhverjum hætti þá bregst Landhelgisgæslan við því,“ segir Ásgeir.