- What: Landhelgisgæslan sends ship Þór to monitor whale hunting vessels
- Impact: Related to environmental activism and marine conservation
Innlent | mbl | 28.6.2026 | 18:20 | Uppfært 18:54 Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Landhelgisgæslan mun lóna nálægt hvalveiðiskipunum til öryggis. Samsett mynd/Árni Sæberg Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Landhelgisgæslan Sóttu slasaða göngukonu Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum » Fleiri tengdar fréttir Varðskipið Þór lét úr Reykjavíkurhöfn klukkan 15 í dag en um borð eru fimm sérsveitarmenn og fjórir séraðgerðarmenn Landhelgisgæslu auk áhafnar. Varðskipið stímir nú í átt að hvalveiðiskipum Hvals hf. sem að öllum líkindum eru staðsett djúpt suður af landinu og búist er við að það verði komið á vettvang seint í nótt eða snemma í fyrramálið. Þetta staðfestir Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar í samtali við mbl.is. Eins og greint hefur verið frá stefnir skip hvalaverndunarsinnans Paul Watson, Bandero, einnig í átt að hvalveiðiskipunum en það kom inn í íslenska efnahagslögsögu í gærkvöld. Frétt af mbl.is Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Paul hefur ítrekað haft í hótunum við Hval hf. og sagst ætla að binda enda á löglegar hvalveiðar fyrirtækisins með öllum mögulegum ráðum. Greint var frá því í gær að flugvél Gæslunnar hefði janframt fyrirskipað að skipið kveikti á staðsetningarbúnaði sínum, sem illa var brugðist við. „Við höfum tekið þessum hótunum alvarlega og okkar viðbúnaður er til samræmis við það. Við erum við öllu búin en meginerindi okkar er að vernda líf og forða slysum,“ segir Georg. Skipinu heimilt að sigla um lögsöguna Spurður hvort að Landhelgisgæslan hafi heimild til þess að snúa skipinu við og meina því að sigla um íslenska efnahagslögsögu segir Georg að slíkt sé ekki hægt samkvæmt alþjóðalögum. „Samkvæmt alþjóðalögum er frjáls för um efnahagslögsöguna heimil ef hún er í lögmætum tilgangi. Við getum því ekki vísað þeim úr efnahagslögsögunni en við getum vísað þeim úr landhelginni sem eru 12 mílur. Við getum aðeins gert það ef við höfum vísbendingar um að þeir hafi eitthvað saknæmt í huga,“ segir Georg. „Við megum því fara um borð í skipið og yfirtaka stjórn á því ef okkur þykir þeir vera komnir langt frá öllum lögum og reglum og venjulegum siglingaaðferðum,“ segir hann og bætir við: „Til þess að það gerist þurfa þeir að vera með einhver ólæti og þá myndum við að sjálfsögðu grípa inn í eftir því sem tilefni gefur til. Auðvitað vonum við að þetta fari allt saman friðsamlega fram og að þeir verði ekki með eitthvað vesen.“ Hann segir því að á meðan skipið er á venjulegri siglingu muni Gæslan ekki stíga inn í. Ekki lent í öðru síðan í þorskastríðunum Georg segir að varðskipið Þór muni því nú gæta hvalveiðiskipanna á meðan talin sé hætta á ferðum en hann segir Gæsluna ekki hafa sinnt svipuðu verkefni síðan í þorskastríðunum en aðgerð Gæslunnar er unnin í nánu samstarfi við dómsmálaráðuneytið. „Það hafa ekki komið upp sambærilegar aðstæður síðan í Þorskastríðunum. „Nú erum við samt með vel þjálfaðann mannskap og góðan búnað og við erum við öllu búnir,“ segir Georg að lokum. Frétt af mbl.is Áhöfn Bandero gaf upp staðsetningu Tengdar fréttir Landhelgisgæslan Sóttu slasaða göngukonu Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stjarnan - KA, staðan er 3:1 Hafna tilboði Chelsea Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hitamet slegið í Póllandi Suður-Afríka - Kanada kl. 19, bein lýsing Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Grænlandsmálinu er ekki lokið Mest lesið Í gær Í vikunni Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Trump yfirgefur landið Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Fjöldi ferða Baldurs fellur niður Gestir Orkumóts strandaglópar í Eyjum Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Trump í Skagafirði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki ESB leggur á nýtt gjald Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Stjarnan - KA, staðan er 3:1 Hafna tilboði Chelsea Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hitamet slegið í Póllandi Suður-Afríka - Kanada kl. 19, bein lýsing Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stórt hrun við Reynisfjöru Stenst ekki skoðun Trump yfirgefur landið Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Mest lesið Í gær Í vikunni Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Trump yfirgefur landið Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Fjöldi ferða Baldurs fellur niður Gestir Orkumóts strandaglópar í Eyjum Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Trump í Skagafirði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki ESB leggur á nýtt gjald Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku