Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kanadamenn á leið í 16-liða úrslit eftir dramatík í lokin

Read Full Article →

Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill og liðin stigu varlega til jarðar. Suður-Afríka hefur hélt boltanum talsvert á sínum vallarhelmingi en á sama tíma pressuðu Kanadamenn ekki mikið. Undir blálok fyrri hálfleiks komust Kanadamenn í dauðafæri í kjölfar hornspyrnu en Mudau bjargaði á línu. Kanada gerði þrjár skiptingar þegar um 30 mínútur voru eftir og það breytti sviðsmyndinni. Stjarnan Alphonso Davies, leikmaður Bayern Munchen, kom inn á en hann hefur glímt við þrálát meiðsli að undanförnu. Með honum mættu Jacob Shaffelburg og Promise David. En það var hins vegar Stephen Eustaquio sem reyndist hetjan því hann þrumaði boltnaum í netið á annarri mínútu uppbótartíma, 1-0. Það reyndist sigurmarkið og Kanada fer í 16-liða úrslit. Suður-Afríka getur hins vegar borið höfuðið hátt. Liðið varðist afar vel í dag með Mbokazi fremstan í flokki.

Share this article