Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þingforseti Líbanons segir samkomulagi við Ísrael ekki verða hrint í framkvæmd

  • What: Political agreement between Lebanon, Israel, and the US
  • Impact: Potential impact on regional stability
Read Full Article →

Nabih Berri, forseti líbanska þingsins, segir þríhliða rammasamkomulagi milli Líbanons, Ísraels og Bandaríkjanna ekki verða hrint í framkvæmd. Berri er hliðhollur Hezbollah- samtökunum. Samkomulaginu, sem var undirritað í Washington á föstudag, er ætlað að tryggja frið í Líbanon. Samkvæmt samkomulaginu áttu líbönsk stjórnvöld að tryggja afvopnun Hezbollah. Á móti myndu Ísraelar draga her sinn úr Líbanon í áföngum. Berri segir samkomulagið ekki tryggja réttindi Líbanons og að um „samkomulag fyrirskipana“ sé að ræða. Hezbollah-samtökin sögðu í nótt að þau myndu halda í rétt sinn til sjálfsvarnar eftir að Ísraelsher gerði árásir í suðurhluta landsins. Í tilkynningu samtakanna segir að árásir Ísraela væru „blygðunarlaust brot“ á vopnahléi sem samtökin hefðu hingað til virt.

Share this article