- What: Major power outage at Venezuela's largest oil refinery
- Impact: Disruption to energy supply and operations due to earthquakes
Húsarústir í strandbænum Caraballeda í La Guaira-héraði sem varð einna verst úti í skjálftunum á miðvikudag.AP/POOL AFP / Miguel Medina Rafmagn er aftur komið á Amuay-olíuhreinsistöðina, sem er stærsta olíuhreinsistöð í Venesúela. Hún var um tíma óstarfhæf vegna rafmagnsleysis á sunnudag sem rekja má til tveggja stórra jarðskjálfta sem skuku landið á miðvikudagskvöld. Erfiðlega hefur gengið að tryggja framboð rafmagns til stórnotenda í landinu eftir skjálftana. Þá hefur vatnsskortur einnig sett strik í reikninginn, meðal annars í olíuhreinsistöðinni. Olíuhreinsistöðin gegnir mikilvægu hlutverki við dreifingu eldsneytis innan landsins.