Í dag hefja tvær stórþjóðir leik í útsláttarkeppni heimsmeistaramóts karla í fótbolta 2026. Brasilía og Þýskalands mæta til leiks en þeirra eru tvær sigursælustu og markheppnustu þjóðir í sögu mótsins. Brasilía hefur unnið flesta leiki, 117 alls og skoraði í þeim 244 mörk. Þjóðverjar hafa unnið 115 sinnum og skorað 242 mörk. Brasilíumenn mæta Japan í fyrri leik dagsins sem gæti reynst þeim gulklæddu strembinn. Japanir eru sterkir og gætu vel gert sigursælustu þjóð sögunnar skráveifu. Japan varð í 2. sæti F-riðils og Brasilía vann C-riðil. Þjóðverjar mæta svo Paragvæ í seinni leik dagsins. Paragvæ fór áfram sem eitt af liðunum með besta árangur í 3. sæti úr D-riðli. Þjóðverjar unnu E-riðil. Dagskrá dagsins: 17:00 - Brasilía - Japan - RÚV 2 20:00 - Stofan - RÚV 2 20:30 - Þýskaland - Paragvæ RÚV 2 22:25 - HM kvöld RÚV 2