Bandaríkin og Íran hafa náð samkomulagi um að stöðva margra daga átök við Hormússund og hefja friðarviðræður á ný. Wall Street Journal hefur þetta eftir embættismönnum frá Bandaríkjunum og öðrum ríkjum, sem komið hafa að viðræðunum. Átökin hófust á fimmtudag og röskuðu tilraunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta til að binda enda á átökin við Íran og ná samkomulagi um lausn á kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Teheran. Umferð um Hormúzsund dróst verulega saman meðan á gagnkvæmum árásum stóð og tafði siglingar um sundið. Bandarískur embættismaður segir að skip geti nú siglt um sundið án hindrana. Fundur í Doha Bandaríkin hafa boðið Írönum til viðræðna í Doha, höfuðborg Katar, strax á morgun. Á dagskrá fundarins eru átökin um Hormússund, sem á ný er orðið helsta deiluefnið í samskiptum ríkjanna. Átökin síðustu daga voru þau hörðustu síðan aðilar undirrituðu viljayfirlýsingu um friðarviðræður 17. júní. Á meðan á þeim stóð héldu Íranir því fram að eingöngu Íran hefði vald til að stýra umferð um sundið og vísaði til orðalags í samkomulaginu sem fól Teheran ábyrgð á að koma siglingum á ný í eðlilegt horf. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, lýsti því yfir á sunnudag að Íran hefði tekið sér einhliða lögsögu yfir sundinu. „Stjórn og endurreisn siglingaumferðar um Hormússund er á ábyrgð Írans,“ sagði Araghchi, í írönskum fjölmiðlum. „Ekkert annað ríki eða aðili ber ábyrgð eða hefur vald í þessu máli.“