Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjórir núverandi og fyrrverandi lögreglustjórar vilja vera yfir höfuðborgarsvæðinu

Read Full Article →

Fjórir fyrrverandi og núverandi lögreglustjórar eru meðal sex umsækjenda um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Á listanum eru bæði fyrrverandi lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Úlfar Lúðvíksson, og settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, Margrét Kristín Pálsdóttir. Úr röðum lögreglustjóra sóttu einnig um starfið María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra. Þá sóttu einnig um starfið Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður í Kærunefnd útlendingamála, og Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund. Listinn var birtur á vef Stjórnarráðsins : Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund Úlfar Lúðvíksson, fyrrv. lögreglustjóri á Suðurnesjum Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður KNÚ

Share this article