Innlent | mbl | 29.6.2026 | 11:31 Skorar á ríkissaksóknara að bregðast við Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Karítas Setja bókamerki Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður hefur skorað á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál þar sem ökumenn voru kærðir fyrir brot á umferðarlögum um lyfjaakstur frá 1. janúar 2020 til dagsins í dag þar sem málunum lauk með lögreglustjórasátt eða útgáfu ákæru og dómi. Tilefnið er sýknudómur Landsréttar frá 25. júní síðastliðnum þar sem einstaklingur var ákærður fyrir að hafa fjórum sinnum ekið bifreið undir áhrifum óxýkódon sem hann var með uppáskrifað frá lækni, að því er kemur fram í aðsendri grein Vilhjálms á Vísi. Landsréttur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Var sakfelldur í héraðsdómi Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður sakfellt einstaklinginn í málinu á grundvelli matsgerða rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði. Í öllum fjórum tilvikunum var hann metinn óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega. Hann var sviptur ökurétti í 15 mánuði og gerð fangelsisrefsing, samkvæmt dómi héraðsdóms. „Í forsendum fyrir niðurstöðu sinni sagði Landsréttur meðal annars að hvað sem liði niðurstöðum matsgerða rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði þá yrði ákærði ekki sakfelldur á grundvelli þeirra einna gegn staðfastri neitun ákærða og klínísku mati læknis sem ákærði gekkst undir í kjölfar eins akstursins,” skrifar Vilhjálmur í grein sinni. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Það er ótækt í réttarríki“ Lögmaðurinn bendir á að við flutning málsins í Landsrétti hafi sýknukrafa einstaklingsins einnig byggt á sjöttu málsgrein 48. greinar umferðarlaga þar sem segir: Ráðherra er heimilt að kveða á um vanhæfismörk með nánari hætti í reglugerð, þ.e. hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja. Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari í Hæstarétti á síðasta ári. mbl.is/Karítas „Þrátt fyrir að umferðarlög nr. 77/2019 hafi tekið gildi 1. janúar 2020 hefur innviðaráðherra u.þ.b. 7 árum síðar ekki ennþá séð sér fært að kveða á um ofangreint í reglugerð með tilheyrandi réttaróvissu, réttarspjöllum og röngum sakfellingum. Það er ótækt í réttarríki,” skrifar Vilhjálmur og nefnir í framhaldinu að ríkissaksóknari hafi eftirlit með framkvæmd ákæruvalds hjá öllum ákærendum. Skorar hann því á embættið að endurskoða áðurnefnd lögreglumál. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sóttu slasaðan göngumann í Hrafntinnusker Stuttmynd með Halldóru Geirharðs verðlaunuð í Frakklandi Leikmaður United ekki til sölu Skorar á ríkissaksóknara að bregðast við Mistökin sem margir gera við pönnukökubakstur Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Vestmannaeyingar kalla eftir varaskipi Vætusamt veður fram undan víðast hvar Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Bindur vonir við virkjun Framkvæmd sem margborgaði sig 16 ára ökumaður kærður Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Vætusamt veður fram undan víðast hvar Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita Nýjast á mbl.is » Sóttu slasaðan göngumann í Hrafntinnusker Stuttmynd með Halldóru Geirharðs verðlaunuð í Frakklandi Leikmaður United ekki til sölu Skorar á ríkissaksóknara að bregðast við Mistökin sem margir gera við pönnukökubakstur Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Vætusamt veður fram undan víðast hvar Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Bindur vonir við virkjun Framkvæmd sem margborgaði sig 16 ára ökumaður kærður Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Vætusamt veður fram undan víðast hvar Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita