Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Haldlögðu töluvert magn af meintu kannabisi í Reykholti

  • What: Police seize large amount of marijuana in Reykholt
  • Impact: Ongoing investigation, one person arrested
Read Full Article →

Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á töluvert magn af „meintum kannabisplöntum, ræktunarbúnaði og meintum fíkniefnum“ í Reykholti í Bláskógabyggð í gær. Einn aðili var handtekinn og færður til skýrslutöku. Málið er til rannsóknar hjá embættinu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu stóðu aðgerðir í Reykholti í gær yfir í töluverðan tíma. RÚV / Ragnar Visage Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, segir sérsveit ekki hafa komið að aðgerðinni. Þá segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu embættið ekki hafa komið að málinu.

Share this article