Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nýr kafli hefst í íslensku háskólastarfi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 29.6.2026 | 15:45 Nýr kafli hefst í íslensku háskólastarfi Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum. Ljósmynd/Sigurður Ingi Pálsson Setja bókamerki Samningur um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands var undirritaður á Hólum í Hjaltadal í dag. Með undirrituninni hefst nýr kafli í íslensku háskólastarfi, að því er menntamálaráðuneytið greinir frá. Frá og með 1. júlí mun Háskóli Íslands starfa sem samstæðuháskóli og Háskólinn á Hólum verður aðildarháskóli undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum. Það voru Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, sem undirrituðu samninginn. Fram kemur í tilkynningu að stofnun háskólasamstæðunnar byggi á nýjum lögum um opinbera háskóla sem Alþingi samþykkti fyrr í mánuðinum og marki tímamót í þróun íslensks háskólakerfis. Markmið samstæðunnar sé að efla samkeppnishæfni háskólanna, auka gæði náms, rannsókna og stoðþjónustu og styrkja tengsl við atvinnulíf og samfélag um land allt. Samstæðunni sé jafnframt ætlað að auka fjölbreytni í námsframboði, þróa og samþætta námsleiðir í takt við breyttar þarfir og styrkja rannsóknasamstarf. Frétt af mbl.is HÍ og Háskólinn á Hólum sameinast Skapa ný tækifæri „Það sem gerir þessi tímamót sérstök er að hér er verið að byggja á styrkleikum tveggja öflugra skóla og skapa ný tækifæri fyrir þverfræðileika, rannsóknir og nýsköpun,“ er haft eftir Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, í tilkynningunni. Þá segir að samkvæmt samningnum verði Háskóli Íslands samstæðuháskóli. Háskólinn á Hólum verði sjálfstæður, sérhæfður aðildarháskóli innan samstæðunnar og muni starfa undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum. Háskólasamstæðan mun lúta sameiginlegri yfirstjórn. Háskólaráð Háskóla Íslands verður háskólaráð samstæðunnar og rektor skólans verður formaður þess. Háskóla Íslands á Hólum er jafnframt tryggð sérstök staða innan samstæðunnar með eigin forseta, stjórn og samstarfsráði. Hólmfríður Sveinsdóttir, núverandi rektor Háskólans á Hólum, verður forseti Háskóla Íslands á Hólum til 30. júní 2031, segir enn fremur. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Nýr kafli hefst í íslensku háskólastarfi Englendingurinn að fá starf í París Draugur sótti að Jóni á Grænlandi Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump yfirgefur landið Framkvæmd sem margborgaði sig Trump fær ekki að reka Cook Hitabylgjan talin hafa kostað yfir 1.300 mannslíf Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Bindur vonir við virkjun Slysið varð í brattri hlíð Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita Nýjast á mbl.is » Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Nýr kafli hefst í íslensku háskólastarfi Englendingurinn að fá starf í París Draugur sótti að Jóni á Grænlandi Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Trump fær ekki að reka Cook Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Bindur vonir við virkjun Slysið varð í brattri hlíð Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita

Share this article