Innlent | mbl | 29.6.2026 | 17:19 | Uppfært 17:40 Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Ming Ting Mancel mætti í réttarsal í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út » Fleiri tengdar fréttir Emeric Mancel, sem fannst látinn á Edition-hótelinu 14. júní 2025, hafði leitað að því á netinu skömmu fyrir ferðina hvort vont væri að vera stunginn í hjartað. Þetta er meðal þess sem fram kom í skýrslugjöf lögreglumanns, sem sá um rannsókn á síma brotaþola auk annara raftækja, á fimmta degi aðalmeðferðar í Edition-málinu svokallaða. Skýrslan er upplýsingaskýrsla um frekari yfirferð rafrænna gagna þar sem farið er yfir gögn sem voru lögreglumanninum óaðgengileg við fyrstu yfirferð. Frétt af mbl.is Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Lítið um rafræn samskipti Í skýrslunni kemur fram að dóttir Emeric og Ming Ting Mancel, Catherine, sem einnig fannst látin á hótelinu, hafi átt í litlum samskiptum í gegnum farsíma sinn. Þar var að finna hópspjall fjölskyldunnar ásamt örstuttum vinnutengdum skilaboðum til kollega sinna. Þá hafði hún stöku sinnum haft samband við nána ættingja í kringum jól eða önnur sérstök tilefni. Síðustu skilaboðin í síma hennar voru frá klukkan 7:12 að morgni 10. júní, sjálfsmynd af Catherine sjálfri. Fjölskylduspjallið er varðveitt á USB-lykli og sagðist lögreglumaðurinn áður hafa farið yfir það með tilliti til rannsóknarinnar án þess að sjá nokkuð sem virtist hafa þýðingu fyrir málið. Frétt af mbl.is Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Yfir 1.200 smásögur Í Notes-appi Catherine var að finna yfir 1.200 stuttar smásögur á ensku. Voru einhverjar með ævintýrabrag og aðrar skrifaðar eins og einhvers konar handrit. Ekki er vitað með vissu hvort Catherine hafi sjálf skrifað sögurnar eða ekki. Var þá farið yfir leitarsögu í spjaldtölvu fjölskyldunnar. Meðal þess sem þar var að finna voru leitir sem tengdust sjálfsvígum Einhver dæmi um gúggúl-leit í iPadinum voru nefnd: „fræg dæmi um fjöldasjálfsmorð“, „sjálfsmorð með gasi“, „sjálfsmorð á fljótlegan hátt leiðbeiningar“, „aðferð sjálfsmorð án sársauka“ og fleira þvíumlíkt. Þessar leitir áttu sér stað í maí 2025. Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn, segist hafa vitað lítið um gúggúl-leit eiginmanns síns. „Ég veit að hann leitaði að þessu en ég bað ekki um að fá að sjá þetta og vissi ekki nákvæmlega hverju hann leitaði að,“ sagði Ming í réttarsal í dag. Frétt af mbl.is Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Leitaði að staðsetningu hjartans Þann 11. júní 2025, þremur dögum fyrir áætlað andlát Catherine og Emeric, sýndi leitarsaga iPadsins að leitað hefði verið að upplýsingum um staðsetningu hjartans í kvenlíkamanum. Meðal þess sem leitað var eftir var: „staðsetja hjartað örugglega rétt miðað við líkama konu“, „uppdráttur kvenlíkami með hjarta“, „kona hvar er hjarta“ og „hnífstunga í hjarta“. Ming kvaðst ekki hafa vitað af þessari leit eiginmanns síns en hún taldi hana þó rökrétta því að hann mun hafa viljað fremja verkanaðinn með skilvirkum hætti. Frétt af mbl.is Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Pieta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected] , síma Pieta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112. Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Brasilía - Japan, staðan er 0:1 Leitin að nýjum stjóra gengur illa Áfrýjunarbeiðni Trumps í kynferðisbrotamáli hafnað Afmæli Gæslunnar frestað vegna Bandero Gæslan fylgist enn með Bandero Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump fær ekki að reka Cook Pútín segir eldsneytisskort í Rússlandi Framkvæmd sem margborgaði sig Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Slysið varð í brattri hlíð Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Mikill léttir fyrir starfsfólk skólans Bindur vonir við virkjun Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita Nýjast á mbl.is » Brasilía - Japan, staðan er 0:1 Leitin að nýjum stjóra gengur illa Áfrýjunarbeiðni Trumps í kynferðisbrotamáli hafnað Afmæli Gæslunnar frestað vegna Bandero Gæslan fylgist enn með Bandero Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvalur 9 á landleið með tvö dýr Trump fær ekki að reka Cook Hitabylgjan talin hafa kostað yfir 1.300 mannslíf Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Slysið varð í brattri hlíð Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Mikill léttir fyrir starfsfólk skólans Bindur vonir við virkjun Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita