Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Styrkleikar og veikleikar gervigreindar

  • What: Overview of the generative AI industry
  • Impact: Industry trends and developments in AI models
Read Full Article →

Samkeppni í gervigreindariðnaðinum fer harðnandi. Í tímaritinu Frjálsri verslun er farið yfir nokkur af stærstu kerfunum, styrkleika þeirra, veikleika og framtíðarhorfur. Þegar hefur verið fjallað um OpenAI og ChatGPT, sem og Claude frá Anthropic. Eftir standa Google Gemini, Microsoft Copilot og Grok frá xAI. Sjá einnig Gervi­greindar­byltingin á fleygi­ferð Google Gemini Google náði ekki að nýta forskotið sem það hafði í þróun gervigreindar fyrir tæpum tíu árum. Vísindamenn Google rituðu árið 2017 fræðigreinina „Attention Is All You Need“, en í henni var kynnt ný tegund svokallaðs tauganetsarkitektúrs, sem í einföldu máli snýr að uppbyggingu og hönnun gervigreindarlíkana. Þær hugmyndir sem þar voru kynntar hafa orðið grunnurinn að nær öllum stærstu gervigreindarlíkönum, þar á meðal ChatGPT, Gemini og Claude. Bard, fyrsta opinbera gervigreindarforrit Google, var kynnt 6. febrúar 2023 og opnað almenningi 21. mars sama ár. Bard þótti almennt standa ChatGPT að baki í gæðum. Í febrúar 2024 endurnefndi Google þjónustuna Gemini. Á síðustu tólf mánuðum hefur þróunin verið hröð. Á fyrri hluta ársins 2025 kom Gemini 2.5 sem var leyst af hólmi af Gemini 3 í lok ársins. Núna í maí var Gemini 3.5 Flash kynnt til sögunnar og Gemini 3.5 Pro er væntanleg. Helsti styrkleiki Gemini er fólginn í því að geta unnið með langan þráð eða samhengisglugga (e. context window). Notendur geta sett inn heilar bækur eða stór gagnasöfn í einni fyrirspurn. Hægt er að tengja Gemini beint við Google Workspace, Google-leitarvélina, YouTube og Android-síma. Gemini er með 21% markaðshlutdeild á fyrirtækjamarkaði samkvæmt Menlo Ventures. Gemini hefur verið að kljást við ímyndarvanda. Í byrjun árs 2024 olli myndvinnslukerfi Gemini sem dæmi fjaðrafoki þegar það skilaði sögulega ónákvæmum myndum. Sundar Pichai, forstjóri Google, sendi þá innanhússskeyti þar sem hann lýsti svörum líkansins sem „algjörlega óásættanlegum“. Þá hefur líkanið einnig verið gagnrýnt fyrir ósveigjanleika í svörum. Microsoft Copilot Microsoft fór aðra leið en flestir keppinautar þess með því að byggja ekki eigin grunnlíkön frá grunni heldur veðja á samstarf við OpenAI. Fyrsta útgáfa þjónustunnar kom fram 7. febrúar 2023 undir nafninu Bing Chat, sem hluti af Bing-leitarvélinni. Um haustið 2023 var nafninu breytt í Copilot. Á síðustu tólf mánuðum hefur Microsoft samþætt Copilot við alla helstu hugbúnaðarpakka sína — Microsoft 365, Windows, Teams, GitHub og Dynamics. Þessi samþætting er kjarninn í viðskiptamódeli fyrirtækisins, þar sem fyrirtæki greiða 30 dollara á notanda á mánuði fyrir viðbótina. Samkvæmt heimildum Wall Street Journal voru viðtökur á fyrirtækjamarkaði hægari í byrjun en stjórnendur Microsoft höfðu ráðgert. Markaðurinn tók við sér á síðasta ári og um mitt það ár voru mánaðarlegir notendur Copilot um 100 milljónir. Helsti styrkleiki Copilot er áðurnefnd samþætting. Fyrir milljónir fyrirtækja sem þegar nota Microsoft 365 er Copilot einfaldasta leiðin til að innleiða gervigreind í daglegt verkflæði starfsmanna. Þá hefur Microsoft fjárfest í eigin gervigreindarrannsóknum og hafið þjálfun eigin líkana undir merkjum MAI, sem til lengri tíma mun ekki gera fyrirtækið jafn háð OpenAI. Microsoft á stóran hlut í OpenAI, eða tæplega 27%. Fjárfestirinn Sheel Mohnot birti upplýsingar á X um að hlutur Microsoft væri metinn á 228 milljarða dollara en sú upphæð hefur hvorki verið staðfest af Microsoft né OpenAI. Veikleikar Copilot snúa fyrst og fremst að gæðum og sjálfstæði þjónustunnar. Þrátt fyrir aðgang að GPT-líkönum OpenAI hafa margir notendur upplifað Copilot sem síðri upplifun en ChatGPT sjálft vegna takmarkana í kerfinu. Þá hefur fjölbreytt flóra Copilot-þjónusta innan Microsoft valdið ruglingi meðal viðskiptavina um hvað felst í hverri þjónustu. Þrátt fyrir að Microsoft sé stór hluthafi í OpenAI hefur ríkt spenna á milli félaganna. Náði hún hámarki í apríl síðastliðnum þegar Microsoft missti einkarétt á sölu OpenAI-þjónustu og þar með mikilvægt stefnumótandi forskot á skýjamarkaði. Grok frá xAI Elon Musk sat í stjórn OpenAI á árunum 2015 til 2018. Þegar hann hætti gaf hann þá skýringu að hann ætlaði að einbeita sér að gervigreindarverkefnum Tesla. Fimm árum seinna, í mars 2023, stofnaði hann xAI, sem þróað hefur gervigreindarlíkanið Grok. Fyrsta útgáfa Grok var kynnt haustið 2023 og var upphaflega aðeins aðgengileg áskrifendum á X, áður Twitter, en búið er að opna fyrir aðgengi að líkaninu fyrir aðra en einungis notendur X. Í fyrra komu þrjár nýjar útgáfur, eða Grok 3, Grok 4 og Grok 4.1. Grok 5 er væntanleg á næstunni, líklegast þykir að hún komi út á 2. fjórðungi 2026. Helsta sérstaða Grok er aðgangurinn að rauntímagögnum frá X, sem gefur líkaninu möguleika á að fjalla um atburði líðandi stundar á annan hátt en samkeppnin. Þá hefur Grok verið markaðssett sem „minna ritskoðað“ líkan, sem ætlað er að höfða til notenda sem telja önnur kerfi of varfærin ef þannig má að orði komast. Ensku hugtökin sem xAI hefur notað yfir Grok í þessu sambandi eru sem dæmi less censored, maximally truth-seeking AI, less politically correct og anti-woke. xAI hefur byggt upp eitt stærsta gagnaverakerfi heims, Colossus í Tennessee. Musk hefur sagt markmiðið vera að ná forskoti með yfirburðum í reiknigetu. Veikleikar Grok eru nokkrir. Útbreiðsla líkansins er enn takmörkuð og vistkerfi þróunaraðila (e. developer ecosystem) lítið samanborið við OpenAI og Anthropic. Samkvæmt Wall Street Journal hefur tengingin við Musk og pólitísk afskipti hans einnig gert mörgum stórfyrirtækjum erfitt fyrir að nota Grok í faglegum tilgangi. Líkanið hefur valdið deilum vegna umdeildra svara. Má meðal annars nefna þegar það lofaði Adolf Hitler (MechaHitler-atvikið) og þá var það gagnrýnt fyrir að hafa dreift gyðingahatri. Í febrúar 2026 var xAI keypt af SpaceX sem hluti af samþættingu gervigreindarstarfsemi félagsins fyrir skráningu SpaceX á markað. Síðasta verðmat xAI var um 230 milljarðar dollara, um fjórðungur af verðmæti OpenAI. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímriti Frjálsrar verslunar . Áskrifendur geta lesið greina hér . Hægt er að kaupa ritið hér .

Share this article