Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stóru skriðjöklarnir rýrna mest

Read Full Article →

Flestir jökulsporðar íslenskra jökla hörfuðu á jökulárinu 2024–2025 samkvæmt mælingum sjálfboðaliða Jöklarannsóknafélagsins. Breytingin er einna mest á stærri skriðjöklum Vatnajökuls, Langjökuls og Mýrdalsjökuls. Þetta kemur fram í fréttabréfi á vegum verkefnisins „Hörfandi jöklar: Lifandi kennslustofa í loftslagsbreytingum“. Verkefnið er unnið í samvinnu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Vatnajökulsþjóðgarðs, Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Náttúrustofu Suðausturlands. Í fréttabréfinu segir að mikið hop hafi mælst á Leirufjarðarjökli og Lambatungnajökli og örlítill framgangur í Gígjökli. Heinabergsjökull brotnaði mikið upp sumarið 2025 og hefur sporðurinn styst um 3 kílómetra á síðastliðnum 2 árum. Gögnin benda til þess að tímabili hægari rýrnunar árin 2012–2020 sé lokið og jöklarnir tapi nú aftur massa jafn ört og á tímabilinu 1995–2011. Jökulárið 2024–2025 var afkoma mæld á um 130 stöðum á jöklum landsins. Lítil vetrarafkoma og mikil sumarleysing ollu því að ársafkoman var mun neikvæðari en á meðalári. Tapið skýrist af óvenjulegum hlýindum að hausti og vetri, sem ollu því að úrkoma féll sem regn frekar en snjór, og af einu hlýjasta sumri frá upphafi mælinga.

Share this article