Innlent | mbl | 29.6.2026 | 23:25 Langþráð reglugerð um lyfjaakstur á næstu grösum Í drögum að reglugerðinni er hámarksgildi 21 lyfs í blóði ökumanns tilgreint út frá því sem samsvarar 0,05% vínanda í blóði. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Innviðaráðuneytið vinnur nú að lokaútfærslu reglugerðar um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfseðilsskyldra lyfja sem kynnt var til samráðs fyrr á árinu. Í drögum að reglugerðinni er hámarksgildi 21 lyfs í blóði ökumanns tilgreint, og eru þau vanhæfismörk miðuð við það sem samsvarar 0,5 ‰ vínanda í blóði. Reglugerðin tekur hins vegar aðeins til ávísunarskyldra lyfja sem neytt er í samræmi við fyrirmæli læknis. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skoraði í morgun á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál þar sem ökumenn voru kærðir fyrir að aka undir áhrifum lyfja, en sú áskorun kom í kjölfar sýknudóms Landsréttar frá því síðasta fimmtudag yfir manni sem ekið hafði undir áhrifum slævandi lyfja. Frétt af mbl.is Skorar á ríkissaksóknara að bregðast við Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Karítas Sett í samráð rúmum sex árum síðar Sex og hálft ár eru liðin frá því að umferðarlög um akstur undir áhrifum lyfja tóku gildi þann 1. janúar 2020 þar tekið er fram að ráðherra sé heimilt að kveða á um það hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu uppáskrifaðra lyfja. Vilhjálmur gagnrýndi það fyrr í dag að innviðaráðherra hafi ennþá ekki séð sér fært að kveða á um ofangreind vanhæfismörk, enda fylgi þeirri óvissu sem nú ríkir réttarspjöll og rangar sakfellingar. Drög að reglugerðinni voru loks sett í samráðsgátt í vor þar sem styrkleiki efna í blóði er umreiknaður að norskri fyrirmynd svo hann samsvari magni vínanda í blóði, en í drögunum er miðað við styrkleika efna sem samsvarar 0,5 ‰ af vínanda í blóði. Í viðauka er svo tiltekið 21 lyf á borð við ketamín, amfetamín, zópiklón og morfín og vanhæfismörk þeirra. Vilja fentanýl og ópíum á listann Umsagnir um drögin bárust frá Lyfjastofnun, ADHD samtökunum og Lyfjafræðingafélagi Íslands, en hið síðastnefnda fagnar þeirri vinnu sem liggur að baki drögunum og segir það mikilvægt að Ísland taki skýr skref í þessum málaflokki. Lyfjastofnun telur að lyfin fentanýl, Remifentaníl, Sufentaníl, ópíum og Tramadol eigi erindi á listann, en stofnunin gaf þar að auki út lista í ágúst 2025 yfir lyf sem ber ávallt að merkja með rauðum viðvörunarþríhyrningi, enda geti þau haft áhrif á hæfi til aksturs og notkunar véla. ADHD samtökin eru öllu gagnrýnni, en þau benda á að drögin virðist heldur rýr og segja það furðulegt að af ADHD-lyfjum sem reglugerðin nær yfir sé einungis tilgreint virka efnið amfetamín. Þá sé samsvörunin milli íslensku reglugerðarinnar og norsku reglugerðarinnar sem höfð var til hliðsjónar ekki nægileg, til að mynda vegna þess að vanhæfistaflan sem fylgir norsku löggjöfinni gildir ekki um þá sem taka lyf samkvæmt læknisráði, heldur nær undanþága eingöngu yfir þá sem eru ekki með lyfseðil. Spyrja samtökin því hvað sé í samræmi við norsku löggjöfina, hverju hafi verið sleppt og hvers vegna það hafi verið gert. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Úkraínskur olígarki særðist í sprengingu Þýskalandi skellt úr leik eftir bráðabana Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Langþráð reglugerð um lyfjaakstur á næstu grösum Notendanöfn innleidd á WhatsApp Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slysið varð í brattri hlíð „Svo lengi sem hann var á lífi ætlaði ég að lifa“ Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Forræðisdeilur kveikjan að skotárásinni Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita Nýjast á mbl.is » Úkraínskur olígarki særðist í sprengingu Þýskalandi skellt úr leik eftir bráðabana Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Langþráð reglugerð um lyfjaakstur á næstu grösum Notendanöfn innleidd á WhatsApp Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn handtekinn í lögregluaðgerð í Reykholti Skuldar þjóðinni skýringar Slysið varð í brattri hlíð Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita