Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hyggst ekki semja um sjávarútveginn

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.6.2026 | 7:00 Aðsend grein: Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Hjörtur J. Guðmundsson mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Komið hefur ítrekað fram í máli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, að hún ætli í raun ekki einu sinni að reyna að ná samningum um sjávarútveginn við Evrópusambandið heldur aðeins að treysta á svonefnda reglu sambandsins um hlutfallslegan stöðugleika. Reglu sem breytir engu um það að valdið yfir íslenzkum sjávarútvegsmálum færi til stofnana sambandsins kæmi til inngöngu Íslands í það og sem á sér enga stoð í sáttmálum þess. „Markmiðin sem sett voru fram í síðustu aðildarviðræðum voru skýr: að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum og hægt er. Þessi markmið standa enn. Hvað lögsöguna varðar þá hafa reglur sambandsins (um hlutfallslegan stöðugleika) ekki breyst – öðrum þjóðum yrði ekki heimilt að veiða í íslenskri lögsögu.“ Með þessum hætti komst Þorgerður til að mynda að orði í aðsendri grein á Vísi 30. marz síðastliðinn þar sem hún tengdi saman regluna um hlutfallslegan stöðugleika og forræði yfir auðlindum efnahagslögsögunnar. Forræði sem ekki verður tryggt með reglunni enda breytir hún sem fyrr segir engu um það að valdið í þeim efnum færi til Brussel í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins þar sem kveðið er á um óskorað vald þess yfir „líffræðilegum auðlindum sjávar“. Vægi Íslandi yrði aðeins 0,08% Hið sama var raunin í samtali Þorgerðar við Morgunblaðið 30. maí þar sem hún sagði regluna um hlutfallslegan stöðugleika vera í „grunnreglum Evrópusambandsins“ og var ekki hægt að skilja þau orð hennar á annan veg en þann að hún ætti við sáttmála sambandsins. Mögulega hefur hún verið að rugla því saman að reglan hefur verið kölluð grunnregla (e. principle) en sem fyrr segir breytir hún engu um það að valdið færi til Evrópusambandsins og á sér enga stoð í sáttmálunum. „Þetta snýst allt um það hverjir mega veiða hér innan landhelginnar [efnahagslögsögunnar væntanlega] og hér hafa ekki erlend fiskiskip fengið að veiða nema gegn samningum, eins og til að mynda Færeyingar hafa á grunni fiskveiðistjórnunarsamnings á milli landanna fengið að veiða ákveðinn hluta botnfisksins sem er skilgreindur í samningnum. Þessi regla um hlutfallslegan stöðugleika mun ekki á neinn hátt opna eitt eða neitt hingað til Íslands,“ sagði ráðherrann enn fremur. Þó að reglan um hlutfallslegan stöðugleika byggist vissulega á sögulegri veiðireynslu er hins vegar aðeins um að ræða vinnureglu ráðherraráðs Evrópusambandsins við úthlutun aflaheimilda sem á sér einungis stoð í reglugerð 1380/2013 um sameiginlega sjávarútvegsstefnu þess. Ekki þarf einróma samþykki til þess að breyta henni eða afnema. Einungis aukinn meirihluta þar sem vægi ríkja fer einkum eftir því hversu fjölmenn þau eru. Þar yrði vægi Íslands aðeins um 0,08%. Hefðum sömu tryggingu og Írar Fram kemur í gögnum Evrópusambandsins um regluna um hlutfallslegan stöðugleika að hún sé ekki hugsuð sem varanlegt fyrirkomulag heldur aðeins tímabundið unz réttar aðstæður skapist svo hægt verði að afnema hana. Sömuleiðis að veiðireynsla sé úrelt viðmið og nær sé að miða við þörf einstakra fiskveiðiflota fyrir aflaheimildir en spænski flotinn er sá langstærsti í Evrópu. Þá tryggi hún ekki lengur að úthlutaðar aflaheimildir til einstakra ríkja sambandsins haldist þar. Morgunblaðið spurði Þorgerði hins vegar ekki um regluna um hlutfallslegan stöðugleika heldur kom það að fyrra bragði frá henni. Þess í stað var hún spurð út í reynslu Íra sem urðu fyrir því fyrir síðustu jól að fjölmennustu ríki Evrópusambandsins komu í veg fyrir að samkomulag sem þeir höfðu við sambandið um lágmarksaflaheimildir á írskum miðum, kæmi til mikils niðurskurðar í þeim efnum, yrði virkjað við ákvörðun í ráðherraráði þess um aflaheimildir þessa árs. Fyrirkomulagið sem Írar höfðu byggðist á álíka traustum lagalegum grunni og reglan um hlutfallslegan stöðugleika. Hvort tveggja á sér einungis stoð í fyrrnefndri reglugerð Evrópusambandsins um sameiginlega sjávarútvegsstefnu þess og er írska fyrirkomulagið frávik frá reglunni. Það er að segja ákveðin sérlausn. Nákvæmlega engin trygging er þannig fólgin í reglunni fyrir einu eða neinu. Hvorki varðandi úthlutaðar aflaheimildir né forræðið. Það færi til sambandsins. Hjörtur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hyggst ekki semja um sjávarútveginn 59 þúsund byggingar gætu hafa skemmst eða eyðilagst Vitnisburður úr helvíti Sleikir sárin með gömlum kærasta Eva Laufey: Grilluð nautalund með villisveppasósu og kartöflusalati Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vestmannaeyingar kalla eftir varaskipi Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Hvalur 9 á landleið með tvö dýr „Svo lengi sem hann var á lífi ætlaði ég að lifa“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta eru spennandi tímar“ Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Banna frímúrurum að verða kaþólikkar Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Langþráð reglugerð um lyfjaakstur á næstu grösum Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Andlát: Halldór Haraldsson Hitinn gæti náð 20 stigum Samgöngurnar verið betri í sumar Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Rúður sprungu í 400 gráðu hita Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Hyggst ekki semja um sjávarútveginn 59 þúsund byggingar gætu hafa skemmst eða eyðilagst Vitnisburður úr helvíti Sleikir sárin með gömlum kærasta Eva Laufey: Grilluð nautalund með villisveppasósu og kartöflusalati Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slysið varð í brattri hlíð Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Áliti borgarlögmanns stungið ofan í skúffu Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta eru spennandi tímar“ Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Banna frímúrurum að verða kaþólikkar Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Langþráð reglugerð um lyfjaakstur á næstu grösum Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Andlát: Halldór Haraldsson Hitinn gæti náð 20 stigum Samgöngurnar verið betri í sumar Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Rúður sprungu í 400 gráðu hita Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda

Share this article