Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar

  • What: A data leak involving a public official's information was reported.
  • Impact: Five individuals' names and case numbers were exposed in a video.
Read Full Article →

Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndbandi sem ísraelska fyrirtækið Cellebrite gerði um embættið. Héraðssaksóknari tilkynnti málið sjálfur til Persónuverndar. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu . Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar. Hún segir að það verði að vera hægt að treysta á að viðkvæmar upplýsingar berist ekki þangað sem þeir eigi ekki að fara. Viðurlög við öryggisbresti geti varðað tveggja ára fangelsi og sektum. Ólafur Þór Haukssok héraðssaksóknari sagði í viðtali við fréttastofu í síðustu viku að verklag yrði endurskoðað. Skömmu eftir að málið kom upp fjallaði breski miðillinn The Guardian um notkun rússneskra yfirvalda á hugbúnaði frá Cellbrite til að komast inn í síma stjórnarandstæðinga sinna.

Share this article