Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lægðaskil með samfelldri rigningu ganga yfir landið í kvöld og fram á morgun

Read Full Article →

Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri rigningu, fyrst á vesturhluta landsins. Skilin færa sig svo austur yfir landið á morgun, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands: Nú í morgunsárið er dálítil lægð við suðausturströnd Grænlands. Í dag mjakast hún til norðausturs og beinir til okkar hægt vaxandi sunnanátt, kaldi eða strekkingur suðvestan- og vestanlands seinnipartinn og dálítil væta með köflum, en hægari vindur og bjart að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast fyrir austan. Í kvöld ganga skil lægðarinnar inn yfir vesturhluta landsins með samfelldri rigningu, og á morgun þokast þau austur yfir landið. Áttin verður því áfram suðlæg, víða gola eða kaldi og rigning eða skúrir, en þurrt að mestu á norðaustanverðu landinu fram yfir hádegi. Hiti 8 til 17 stig, mildast norðaustantil. Á fimmtudag er svo útlit fyrir vestan- og suðvestanátt með skúrum víða um land. Kólnar í veðri.

Share this article