Innlent | Morgunblaðið | 30.6.2026 | 11:00 Stýra umferð og telja bílana Horft af Bolafjalli yfir Ísafjarðardjúpið að Grænuhlíð þar sem Riturinn skagar fram. Hver stund hefur sína töfra og svipbrigði. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Í öryggisskyni eru nú í undirbúningi margvíslegar aðgerðir á Vestfjörðum vegna þess mikla fjölda fólks sem þangað er búist við að komi vegna sólmyrkvans 12. ágúst næstkomandi. Samkvæmt útreikningum stjörnufræðinga mun myrkvinn hvergi sást betur en á útnesjum á vestanverðu landinu, svo sem Bjargtöngum á Látrabjargi og Bolafjalli við Bolungarvík. Á báðum þessum stöðum – og öðrum eftir atvikum – verða lögregla, björgunarsveitir, hjúkrunarlið og aðrir viðbragðsliðar með varðstöðu og gæslu, sem vegna aðstæðna og fjarlægðar frá byggð þarf að skipuleggja vel. „Við höfum fundað stíft að undanförnu og farið yfir mál. Áherslan beinist þá að sunnanverðum Vestfjörðum, enda má búast við að flestir verði þar,“ segir Hlynur Hafberg Snorrason yfirlögregluþjónn á Ísafirði. Alls verða 16 manns á 8 bílum frá lögreglunni á Vestfjörðum á sólmyrkvavakt 12. ágúst, hver á sínum pósti og varðsvæði. Þetta er veruleg viðbót við þann liðstyrk sem lögreglan vestra hefur að jafnaði, það er sex menn á þremur bílum. Björgunarsveitir og aðrir þétta raðir sínar og fjölga í liði í svipuðum mæli. Svæðið við Látrabjarg tekur 10.000-11.000 manns. Látrabjargsleiðin sé greið Svæðið við Látrabjarg tekur 10.000-11.000 manns. Gæsla og viðbragð gerir ráð fyrir að fleiri fari ekki á svæðið, enda verður í aðdraganda sólmyrkvans settur upp varðpóstur í botni Patreksfjarðar og umferðinni um Örlygshafnarveg á Bjargtanga stýrt þannig. Lokað verður fyrir umferð stórra rúta, meðal annars til að draga úr álagi á veikbyggðum vegum. „Við verðum með talningu á bílum sem fara út að Látrabjargi og stýrum álagi. Við Örlygshafnarveg verða fjögur misstór bílastæði. Lagning á eða við veginn verður ekki heimil. Á Látrabjargi sjálfu þarf jafnframt að marka stíga, koma upp salernum og fleiru. Vegna þess mannfjölda sem þarna gæti orðið eru fjarskiptamál áskorun. Þarna verður lögreglan með talsverðan viðbúnað, sjúkrabílar á svæðinu og landverðir munu standa vakt við bjargbrúnina. Leiðin út af svæðinu þarf að vera greið komi eitthvað upp á, svo sem bráðaflutningar með sjúklinga. Sérstaklega munum við þá fylgjast með að bílum verði ekki lagt úti í kanti, enda getur slíkt verið fyrirstaða,“ segir Hlynur. Banna einkabíla á Bolafjalli Við Bolafjall er einnig að mörgu að hyggja. Þar hefur verið tekin sú ákvörðun af Bolungarvíkurkaupstað, sem er veghaldari og eigandi útsýnispallsins, að banna umferð einkabíla á fjallið. Bjóða fólki þess í stað upp á rútuferðir neðan úr bæ upp á fjall, enda ekki langt að fara. Fólk úr björgunarsveitinni Erni í Bolungarvík verður þá með gæslu á Bolafjalli, en af því er afar víðsýnt þegar vel virðrar. Þarna ættu því að vera góðar aðstæður til að horfa á sólmyrkvann 12. ágúst, sem verður í hámarki kl. 17:48:48. „Hvernig sem allt annars er og fer mun enginn missa af þessu fyrirbæri. Að gera sér ferð á Látrabjarg eða Bolafjall er ekki úrslitaatriði. Sólmyrkvinn má ekki snúast um að mæta á svæðið, eins og sagt er. Á flestum þéttbýlisstöðunum hér um slóðir verður aðstaða á góðum stöðum þar sem fólk getur virt þetta undur náttúrunnar fyrir sér. Þar er öll þjónusta líka meiri og betri en úti á Látrabjargi og Bolafjalli,“ tiltekur yfirlögregluþjónninn á Vestfjörðum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sagður vilja losa sig við fimm leikmenn City Yfirlýsing tónlistarmanna: „Tónlist er ekki bara gögn“ Setja 50.000 milljarða í varnarmál Stýra umferð og telja bílana Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um 50 þúsund er enn saknað Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Forræðisdeilur kveikjan að skotárásinni Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta eru spennandi tímar“ „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Sagður vilja losa sig við fimm leikmenn City Yfirlýsing tónlistarmanna: „Tónlist er ekki bara gögn“ Setja 50.000 milljarða í varnarmál Stýra umferð og telja bílana Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Útlit fyrir 1,6% samanlagðan hagvöxt í stað 7,7% Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta eru spennandi tímar“ „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda