Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 31 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Mónakó Sprenging rannsökuð sem tilraun til manndráps Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Sprenging í íbúðarhúsnæði í Mónakó í gærkvöld er ekki rannsökuð sem hryðjuverk heldur tilraun til manndráps. Þetta sagði saksóknari á blaðamannafundi. Þrír særðust í sprengingunni, þar af hlutu tveir lífshættulega áverka. Þeirra á meðal, herma heimildir fréttastofu AFP, er úkraínski ólígarkinn Vadym Yermolaiev. Frá vettvangi sprengingarinnar. EPA / SEBASTIEN NOGIER Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Saka ráðherra um sýndarsamráð Fulltrúar Ungheilla segjast hafa verið alveg hlunnfarin – engar tillögur úr samráðsvinnustofu hafi ratað í drög að reglugerð um símafrí í skólum. Bann við símum sé ekki rétta leiðin. Fyrir 49 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Íþróttir Fögnuðu nýjum frjálsíþróttavelli í Suðursveit Nýr Vísis-völlur í Suðursveit var vígður um liðna helgi. Ungmennafélagið Vísir hefur unnið að uppbyggingu vallarins í heilt ár. Fyrir 57 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fara fram á hámarksrefsingu yfir Mancel Saksóknari fer fram á hámarksrefsingu yfir Ming Ting Mancel, sem er gefið að sök að hafa banað dóttur sinni á Edition-hótelinu í Reykjavík í fyrra. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tilkynningum um áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgaði mikið Tilkynningum um kynferðisbrot fjölgaði um níu prósent fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgaði um 64%. Fjöldi tilkynninga um vændi þrefaldaðist. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Ísland og Noregur undanþegin verndaraðgerðum ESB vegna stálframleiðslu Ísland og Noregur verða undanþegin verndaraðgerðum Evrópusambandsins fyrir framleiðslu á stáli, segir framkvæmdastjórn ESB. Aðgerðirnar taka gildi á morgun og eru sagðar beinast gegn viðvarandi offramleiðslu á stáli á heimsvísu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Gistinóttum fjölgaði lítillega í maí Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tæpt prósent í maí samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Alls voru gistinætur 432 þúsund á landsvísu í maí en voru 428 þúsund í maí í fyrra. Gistinóttum fjölgaði mest á Suðurlandi eða um rúm 15 prósent og gistinóttum fjölgaði einnig á Norðurlandi, um 6,3 prósent. Gistinóttum fækkaði í öðrum landshlutum, mest á Vesturlandi og Vestfjörðum, um tæp 16 prósent. Á fyrstu fimm mánuðum ársins var fjöldi gistinátta á hótelum nær óbreyttur miðað við sömu mánuði í fyrra. Aukningin var hálft prósent milli ára. Ferðamenn í Reynisfjöru í maí. Guðmundur Bergkvist Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Um 95 milljónir í Evrópu upplifa 35 stig í dag Ólöf Ragnarsdóttir Að minnsta kosti 35 stiga hiti verður hjá um 95 milljónum Evrópubúa í dag, einkum í austur- og suðurhluta álfunnar. Hitamet féll í Slóvakíu í gær þegar hiti mældist þar 41 stig; og í Tékklandi á sunnudag þegar hiti fór í 41,9 stig. Því fór nærri að hitamet félli í Ungverjalandi í gær, 41,8 stig, en mesti hiti sem mælst hefur er 41,9 stig í júlí 2007Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að minnst 1300 hafi farist í hitabylgjunni sem hófst fyrir rúmri viku. Stofnunin varar við því að þessi hiti sé aðeins forsmekkur þess sem koma skal. EPA / ANTONIO BAT Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL KrakkaRÚV Hvenær varð íþróttagreinin golf til? „Alls konar boltaleikir virðast hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda. Stundum þá er boltanum kastað eða sparkað og stundum sleginn með priki eða kylfu,“ segir Stefán Pálsson í nýjum útvarpsþáttum fyrir krakka á öllum aldri. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar Siguróli Magni Sigurðsson Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafði gegnt starfinu frá árinu 2022. Pétur var fyrsti ráðni sveitarstjóri Húnabyggðar, sem varð til við sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Á vef Húnabyggðar segir: „Með ráðningu Svavars fær Húnabyggð öflugan stjórnanda með víðtæka reynslu af stjórnsýslu, rekstri og þjónustu hins opinbera. Sveitarstjórn telur að þekking hans, reynsla og sterk tengsl við heimabyggðina muni nýtast vel við áframhaldandi uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins.“ Svavar Pálsson undirritar samning. Til hægri er Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggð Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Húllumhæ í Paragvæ — forsetinn boðar frí Forseti Paragvæ hefur gefið öllum þar í landi frídag eftir að landsliðið vann Þýskaland á HM í fótbolta. Paragvæjar höfðu betur eftir vítaspyrnukeppni og fara áfram í 16-liða úrslit. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf. Skipverjar Bandero hyggjast gera atlögu að olíufélaginu sem sinnir Hval hf. í tilraun til að koma í veg fyrir hvalveiðar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar Héraðssaksóknari tilkynnti öryggisbrest hjá embættinu til Persónuverndar. Nöfn fimm manns sem sættu sakamálarannsókn birtust í kynningarmyndbandi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Lægðaskil með samfelldri rigningu Lægðaskil ganga yfir landið vestanvert í kvöld með samfelldri rigningu og þau færa sig svo austur yfir landið. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti „Manni er kippt niður á jörðina ansi harkalega“ Karlalandsliðið í körfubolta heldur leið sinni á HM áfram á fimmtudag þegar liðið tekur á móti Ítalíu í Laugardalshöll. Martin Hermannsson, sem er nýbakaður Þýskalandsmeistari, er á ný í íslenska liðinu eftir að hafa misst af síðustu leikjum. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Holland – Marokkó Marokkóar eru komnir áfram í 16-liða úrslit eftir sigur á Hollendingum. Leikur liðanna endaði með vítaspyrnukeppni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi Fjármálagreinandi líkir stærð fjárfestingarfélagsins Stoða í íslensku viðskiptalífi við lífeyrissjóð af minnstu gerð. Í júní var sagt frá fyrirhugaðri sameiningu tveggja fyrirtækja sem Stoðir er stór hluthafi í, Bláa lóninu og Arctic Adventures. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Markabarátta Mbappe og Haaland heldur áfram Í dag eru þrír leikir á dagskrá í 32-liða úrslitum HM karla í fótbolta. Fílabeinsströndin og Noregur mætast í fyrsta leiknum. Frakkar og Svíar mætast í kvöldleiknum og Mexíkó mætir Ekvador í næturleiknum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt Borgarstjóri Moskvu segir 50 dróna sem stefndu á höfuðborgina hafa verið skotna niður í nótt. Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með langdrægum drónum á síðustu mánuðum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans Bandaríkjaforseti greindi frá því í að hann ætlaði að reka Lisu Cook úr bankaráði vegna ásakana um sjármálamisferli. Í meirihlutaáliti hæstaréttar segir að hún hafi ekki fengið tækifæri til að verjast ásökununum. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Marokkó hafði betur gegn Hollandi eftir vítaspyrnukeppni Hollendingar sitja eftir með sárt ennið eftir tap í vítaspyrnukeppni, annað mótið í röð. Marokkó mætir Kanada í 16-liða úrslitum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum Milljarðamæringurinn sveik yfir milljarð Bandaríkjadala frá þúsundum fylgjenda sinna. Hann lofaði þeim ríkulegri ávöxtun en nýtti féð til þess að fjármagna dýran lífsstíl sinn. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mónakó Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó Þrír særðust í sprengingunni, þar á meðal táningur. Lögreglan leitar nú tilræðismannsins sem lagði á flótta. 30. júní 2026 kl. 1:12INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey Eftir að Breiðafjarðarferjan Baldur var færð á aðra siglingaleið minnkuðu vatnsflutningar til Flateyjar. Skipstjóri Særúnar telur að hægt sé að sinna vatnsþörf í eyjunni með einni aukferð í viku. 29. júní 2026 kl. 23:52ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Þýskaland - Paragvæ Hér er allt það helsta úr spennutrylli Þýskalands og Paragvæ í Boston. 29. júní 2026 kl. 23:48INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón Menntasjóður námsmanna birtir konu einni stefnu í Lögbirtingablaðinu vegna námsláns upp á rúma 21 milljón króna. Hún er búsett í Ástralíu, en ekki er vitað hvar nákvæmlega og því er ekki hægt að stefna henni í eigin persónu. 29. júní 2026 kl. 23:42ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Paragvæ sló Þýskaland út eftir spennutrylli Paragvæ lagði Þýskaland að velli eftir vítakeppni í 32-liða úrslitum HM í kvöld. Þjóðverjar höfðu aldrei áður tapað vítakeppni á HM. Orlando Gill, markvörður Paragvæ, var hetjan ásamt Jose Canale, sem skoraði sigurmarkið. 29. júní 2026 kl. 23:16INNLENDAR FRÉTTIR Palestína Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu Efnahagsráðherra Palestínu bindur vonir við að friðarviðræðurnar milli Írans og Bandaríkjanna skili árangri. Hann segir að Palestínumenn vilji lifa í sátt og samlyndi við alla, líka Ísraelsmenn, en Bandaríkin verði að fá Ísrael til að semja frið. 29. júní 2026 kl. 22:37ERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu Maðurinn sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þar vegna forsjárdeilu. Hann hafði áður komið við sögu hjá lögreglunni en ekki þótt ofbeldisfullur. 29. júní 2026 kl. 22:06INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg 101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina Guðmundur Einarsson, 101 árs Reykvíkingur, lætur ekki deigan síga þegar líkamsrækt er annars ve