Innlent | mbl | 30.6.2026 | 11:57 Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Þessi mynd náðist af Frökkunum við Kötlu fyrir rúmri viku. Ljósmynd/Margrét Herborg Nikulásdóttir Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Utanvegaakstur „Þegar maður er ungur, þá gleymir maður sér“ Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Hissa að mönnum detti þetta í hug » Fleiri tengdar fréttir Tveir Frakkar sem voru staðnir að utanvegaakstri á Emstruleið og undir Kötlu fyrir rúmri viku virðast vera komnir í Ísafjarðardjúp ef marka má myndir og umræður sem skapast hafa í Facebook-hópnum Bakland ferðaþjónustunnar. Þar birtir einn mynd af Land Rover-bíl sem virðist vera sá sami og ekið var utan vega á hálendi Íslands og segir hann vera í Ísafjarðardjúpi. Annar sem skrifar við færsluna, sem birtist í gærkvöldi, segir að þeir séu komnir til Ísafjarðar. Frétt af mbl.is „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Lögreglan á Vestfjörðum hefur ekki fengið neinar tilkynningar vegna Frakkanna eða utanvegaaksturs í þeirra umdæmi, en er með augun opin sérstaklega fyrir umræddum einstaklingum og á tánum vegna þeirra, líkt og önnur lögregluembætti. Þetta staðfestir Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, í samtali við mbl.is. Hann segir lögregluembættin á landinu hafa talað sig saman vegna málsins um að fylgjast vel með Frökkunum, verði lögreglan var við þá í sínu umdæmi. „Embættin eru að upplýsa hvort annað og við fylgjumst með og grípum hiklaust inn í ef ástæða er til,“ segir Hlynur. Frétt af mbl.is „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Létu ekki segjast Lögreglan á Suðurlandi hafði hendur í hári Frakkanna fyrir rúmri viku og kallaði þá inn til yfirheyrslu. Þar var þeim gert að greiða sekt upp á nokkur hundruð þúsund krónur. Sekt fyrir brot af þessu tagi getur hæst orðið ein milljón, en upphæðin fer eftir eðli og umfangi brotanna hverju sinni. Margir hafa tjáð sig vegna utanvegaakstursins og þykja viðurlögin helst til væg. Hafa einhverjir sagt að réttast væri að vísa mönnunum úr landi og gera ökutæki þeirra upptæk, enda hafi þeir ekki látið segjast í fyrstu þegar þeim var bent á að utanvegaakstur, sem þeir voru að stunda, væri ólöglegur. Margrét Herborg Nikulásdóttir ökuleiðsögumaður var ein þeirra sem höfðu afskipti af þeim við Kötlu. Sagði hún þá einfaldlega hafa yppt öxlum þegar hún benti þeim á að athæfið væri ólöglegt. Tók hún myndir af bílunum og sendi lögreglu. Eftir það urðu Frakkarnir uppvísir að utanvegaakstri á Emstruleið. Frétt af mbl.is Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Ráðherra segir sektir of lágar Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, varð síður en svo hissa þegar hún frétti af utanvegaakstri ferðamannanna og sá myndir af verksummerkjum þeirra. Sagði hún í samtali við mbl.is í síðustu viku að lögbrot af þessu tagi hefðu fengið að viðgangast lengi og nú væri tími til kominn að stjórnvöld bregðist við með þeim ráðum sem þarf, enda séu þau mörg til. Frétt af mbl.is Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Þá brást Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, við og sagði að sektarfjárhæðir sem beitt væri í dag þegar menn gerast sekir um utanvegaakstur væru of lágar og endurspegluðu ekki nægilega alvarleika brotanna. „Þetta eru skemmdarverk og umhverfisspjöll sem þarf að taka fastari tökum, og við ætlum að fylgja því kirfilega eftir,“ sagði Jóhann Páll í samtali við mbl.is í síðustu viku. Frétt af mbl.is Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Tengdar fréttir Utanvegaakstur „Þegar maður er ungur, þá gleymir maður sér“ Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Hissa að mönnum detti þetta í hug » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Plastbarkamálið þingfest í ágúst Spakur með 32,85% ársávöxtun Ætlar ekki að segja upp störfum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Krefst þess að Ming verði sýknuð af öllum ákærum Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samgöngurnar verið betri í sumar Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Segir sjálfsagt að skoða málið Um 50 þúsund er enn saknað Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta eru spennandi tímar“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Plastbarkamálið þingfest í ágúst Spakur með 32,85% ársávöxtun Ætlar ekki að segja upp störfum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Krefst þess að Ming verði sýknuð af öllum ákærum Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útlit fyrir 1,6% samanlagðan hagvöxt í stað 7,7% Hvalur 9 á landleið með tvö dýr Segir sjálfsagt að skoða málið Átti erfitt með að horfa á upptökuna Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta eru spennandi tímar“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda