Innlent | mbl | 30.6.2026 | 14:15 Segir Watson vera elítuaktívista Hanna Katrín Friðriksson og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir segja yfirlýsingar Pauls Watsons ólíðandi. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Eggert Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Hvalur 9 á landleið með tvö dýr Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Áhöfn Bandero gaf upp staðsetningu » Fleiri tengdar fréttir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir yfirlýsingar hvalaverndunarsinnans Pauls Watsons og áhafnarinnar á skipi hans Bandero algjörlega ólíðandi. Óháð því hvaða afstöðu fólk beri til hvalveiða þá sé það prinsippmál að íslensk stjórnvöld bregðist við slíkum hótunum af fullri hörku. „Þetta mál snýst ekki um hvalveiðar eða afstöðu til þeirra. Við munum einfaldlega aldrei líða það að öryggi íslenskra sjómanna sé ógnað og það verður gripið til þeirra aðgerða sem nauðsyn er á til þess að tryggja öryggi sjómanna á miðunum í kringum Ísland,“ segir Þorbjörg Sigríður í samtali við mbl.is. og kallar hún jafnframt Paul Watson „elítuaktívista“. Aðgerðir Landhelgisgæslunnar undanfarna daga hafa verið unnar í nánu samstarfi við dómsmálaráðuneytið en Þór fylgir nú Bandero eftir á siglingu þess um efnahagslögsöguna af öryggisástæðum. Frétt af mbl.is Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Frétt af mbl.is Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Ekki sambærilegt við glæpahópa Margir hafa velt vöngum yfir því undanfarna daga hvernig standi á því að skipið hafi yfirhöfuð fengið að sigla inn í íslenska efnahagslögsögu og hefur verið nefnt í því samhengi að glæpasamtökum á borð við Bandidos eða Hells Angels sé iðulega snúið við á landamærunum og þeim meinuð innganga inn í landið. Þorbjörg segir þó þann samanburð ekki alveg standast og bendir á að ýmsar lagalegar ástæður séu fyrir því að skipinu sé heimilt að sigla hér. „Bandidos eru skilgreind glæpasamtök og auk þess er efnahagslögsagan alþjóðlegt siglingasvæði þar sem íslensk lög gilda ekki alveg með sama hætti og á íslenskri grundu. Viðbrögð okkar og Landhelgisgæslunnar helgast því svolítið eftir atvikum, alvarleikastigi og staðsetningu en þessi samanburður er ekki alveg upp á punkt og prik.“ Þá segir Þorbjörg að viðbúnaður og aðgerðir gæslunnar hafi því verið í takt við þá hættu sem talin var stafa af skipinu. „Aðalatriðið er það að hvalveiðar eru lögmætar á Íslandi. Það er ólögmætt að hindra þær. Þegar síðan sú hindrun er farin að fela mögulega í sér áhrif og ógna velferð og jafnvel lífi íslenskra sjómanna, þá munu íslensk stjórnvöld bregðast við af fullri hörku. Því við munum aldrei láta það líðast að öryggi íslenskra sjómanna sé ógnað,“ segir Þorbjörg. Frétt af mbl.is Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Stjórnvöld einhuga í viðbrögðum sínum Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra tekur í svipaðan streng og Þorbjörg en hún segir íslensk stjórnvöld einhuga í því að mæta slíkum ógnunum af fullri hörku með öllum tækjum og tólum sem þau hafi yfir að ráða. Hún er nú með í vinnslu frumvarp til laga sem ætlað er að setja hömlur á hvalveiðar. Óháð því segir hún ólíðandi að erlendir aðilar hafi í hótunum við íslenska sjómenn og ætli sér að skaða og spilla atvinnustarfsemi sem þó er enn lögleg. „Ég árétta að þetta er algjörlega ólíðandi. Ég hef mína skoðun á hvalveiðum almennt, en það eru í gildi núna lög sem heimila hvalveiðar. Óháð skoðunum fólks á þessari starfsemi þá fylgir Hvalur hf. þeim lögum og reglum sem við setjum,“ segir Hanna Katrín í samtali við mbl.is og bætir við: „Það liggur auðvitað fyrir að íslensk stjórnvöld eru algjörlega einhuga um það að því verði mætt af fullri hörku með öllum þeim tækjum og tólum sem við höfum yfir að ráða.“ Tengdar fréttir Hvalveiðar „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Hvalur 9 á landleið með tvö dýr Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Áhöfn Bandero gaf upp staðsetningu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Klopp: „Þá hefði Arsenal aldrei orðið meistari“ Segir Watson vera elítuaktívista Veitingastaðurinn Moss hlýtur alþjóðlega viðurkenningu „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Ariana Grande biðst afsökunar Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Útlit fyrir 1,6% samanlagðan hagvöxt í stað 7,7% Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður „Þetta eru spennandi tímar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Stýra umferð og telja bílana „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Klopp: „Þá hefði Arsenal aldrei orðið meistari“ Segir Watson vera elítuaktívista Veitingastaðurinn Moss hlýtur alþjóðlega viðurkenningu „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Ariana Grande biðst afsökunar Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Um 50 þúsund er enn saknað Útlit fyrir 1,6% samanlagðan hagvöxt í stað 7,7% Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Stýra umferð og telja bílana „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda