- What: Luxury yacht La Datcha banned from entering Icelandic ports
- Impact: Related to EU sanctions against Russia
Innlent | mbl | 30.6.2026 | 15:12 Gæslunni stætt á að banna La Datcha að koma í höfn Snekkjan fékk að taka eldsneyt áður en hún fór af landi brott. mbl.is/Þorgeir Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest ákvörðun Landhelgisgæslu Íslands um að meina lúxussnekkjunni La Datcha að koma til hafnar á Akureyri í mars á þessu ári. Dómur þess efnis féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun eftir að Tinkov-fjölskyldan með Oleg Tinkov í fararbroddi stefndi íslenska ríkinu vegna hafnbannsins. Málið vakti mikla athygli í mars. Snekkjan hafði verið leigð fyrir hóp ferðamanna sem hugðist stunda þyrluskíði á Norðurlandi, en þegar hún var á leið til landsins taldi Landhelgisgæslan að hún félli undir þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins gegn Rússlandi. Frétt af mbl.is Lúxussnekkja á Pollinum Eiginkonan eigandi snekkjunnar Eigendur snekkjunnar mótmæltu ákvörðuninni og bentu á að skipið sigldi undir fána Panama þegar það kom til Íslands. Þeir sögðu jafnframt að raunverulegir eigendur væru ekki lengur rússneskir. Frétt af mbl.is Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Í dóminum kemur fram að snekkjan sé í eigu félags á Seychelles-eyjum sem er í eigu kýpversks sjóðs tengdum Tinkov-fjölskyldunni. Þar segir jafnframt að raunverulegur eigandi sé Rina Vosman, sem hafi afsalað sér rússneskum ríkisborgararétti eftir innrás Rússlands í Úkraínu. Eiginmaður hennar, Oleg Tinkov, stofnandi Tinkoff-bankans, hafi einnig sagt skilið við rússneskt ríkisfang og gagnrýnt innrásina opinberlega. Frétt af mbl.is Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Skipið var áður skráð í Rússlandi Kjarni deilunnar snerist þó ekki um eigendurna heldur sögu skipsins. Í nokkurn tíma hafði La Datcha verið leigð rússnesku fyrirtæki. Slík leiga kallast þurrleigusamningur og felur í sér að leigutakinn sér um allan rekstur skipsins á meðan eigandinn heldur eignarhaldinu. Vegna þessa var skipið skráð tímabundið í rússneska skipaskrá til að mega sigla þar. Eigendurnir sögðu að þessum samningi hefði verið sagt upp fljótlega eftir innrásina í Úkraínu í mars 2022. Þeir héldu því fram að tafir á því að afskrá skipið úr rússnesku skipaskránni hefðu verið alfarið á ábyrgð rússneskra yfirvalda en ekki þeirra sjálfra. Fáninn skipti mestu máli Landhelgisgæslan leit hins vegar ekki til eignarhaldsins heldur fánaskráningar skipsins. Samkvæmt reglum Evrópusambandsins, sem Ísland framfylgir, er skipum sem voru skráð undir rússneskum fána eftir 24. febrúar 2022 óheimilt að fá aðgang að höfnum innan EES, jafnvel þótt þau hafi síðar verið skráð undir fána annars ríkis. Landhelgisgæslan taldi því að snekkjan félli undir hafnarbannið þar sem hún hafði verið skráð undir rússneskum fána eftir innrásina áður en hún var síðar endurskráð í Panama. Fékk aðeins að taka eldsneyti Í kjölfarið var snekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri og henni gert að yfirgefa íslenska landhelgi. Hún fékk þó sérstaka heimild til að koma einu sinni að landi til að taka eldsneyti og nauðsynlegar birgðir áður en hún hélt áfram ferð sinni til Grænlands. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Segir gagnaleka héraðssaksóknara afar óheppilegan Gæslunni stætt á að banna La Datcha að koma í höfn Liverpool gæti þurft að slá eigið félagaskiptamet French tourists believed to have reached Ísafjörður Harry Kane tók stóra ákvörðun Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ „Ekkert svigrúm til að gera neitt gott“ Forræðisdeilur kveikjan að skotárásinni „Þetta eru spennandi tímar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Stýra umferð og telja bílana 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Segir gagnaleka héraðssaksóknara afar óheppilegan Gæslunni stætt á að banna La Datcha að koma í höfn Liverpool gæti þurft að slá eigið félagaskiptamet French tourists believed to have reached Ísafjörður Harry Kane tók stóra ákvörðun Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Útlit fyrir 1,6% samanlagðan hagvöxt í stað 7,7% Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Stýra umferð og telja bílana 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda